Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. júlí 2026 13:32 Valskonur sáu ekki til sólar gegn Blikum í gær. Vísir/Diego Ótrúlegar lokatölur blöstu við eftir leik Vals og Breiðabliks í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær. Breiðablik vann leikinn 7-1 en slíkt hefur vart sést milli liða sem hafa barist hatrammlega um Íslandsmeistaratitilinn undanfarin ár. Sérfræðingar Bestu markanna áttu vart orð yfir yfirburðum þeirra grænklæddu.
Valsliðið hefur gengið í gegnum endurnýjun síðustu tvö sumur og er langt frá því að vera samkeppnishæft við topp deildarinnar, líkt og raunin var árin á undan. Valur varð Íslandsmeistari fjórum sinnum frá 2019 til 2023 en rétt missti af titlinum til Blika í lokaumferðinni 2024. Klippa: Valskonur vandræðalega slakar Í kjölfarið var stokkað verulega upp í leikmannahópnum og Pétri Péturssyni sagt upp sem þjálfara liðsins. Valskonur lentu í sjöunda sæti deildarinnar síðasta sumar og eru nú í harðri fallbaráttu. Til marks um hrunið var ótrúlegur 7-1 sigur Breiðabliks á Valsliðinu, og það á heimavelli Vals, í gærkvöld. „Þetta var eins og Barcelona á móti Hetti, með fullri virðingu,“ segir Ásta Eir Árnadóttir í Bestu mörkunum. „Ég upplifði eins og Valur væri tveimur mönnum færri á vellinum. Þær voru svo langt frá mönnum, þetta var til skammar,“ bætti hún við. „Breiðablik byrjar leikinn mjög vel og smella núna í fyrri hálfleik í fyrsta skipti í langan tíma sem þær byrja leik vel. En guð minn góður, plássið sem allir leikmenn Breiðabliks fengu, sérstaklega miðjumenn og sóknarmenn. Það var engin pressa,“ segir Ásta enn fremur. Blikar leiddu 6-0 í hléi „en þær hefðu getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleik,“ segir Ásta. „Þær hefðu getað skorað 13 mörk, Hrafnhildur Ása [Halldórsdóttir] hefði getað skorað sjö bara í fyrri hálfleik og Olla [Ólöf Sigríður Kristinsdóttir] hefði getað skorað þrjú,“ segir Margrét Lára Viðarsdóttir, sem lék lengi vel með Val. „Þegar þú sérð hvernig öllum líður inni á vellinum, að enginn taki stjórnina, taki hópinn saman og endurskipuleggi stöðuna og pressuna – af því að Matti [Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals] talaði um að pressan hafi klikkað – það fannst mér áþreifanlegt að það vantaði algjörlega einhvern leiðtoga hjá Val að stilla saman strengi,“ segir Margrét Lára.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Valur Breiðablik Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira