„Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 14. júlí 2026 12:30 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir málið ekki vera á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Vísir/Ívar Fannar Dómsmálaráðherra segir engar breytingar sem lúta að netsölu með áfengi vera í skoðun hjá ríkisstjórninni. Ef niðurstaða Landsréttar staðfesti það að netsalan sé ólögleg vænti hún þess að lögreglan bregðist við.
Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Í apríl féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness um að áfengissala eins þessara fyrirtækja, eða Smáríkisins, væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í fréttum okkar í gær að óskiljanlegt sé að netsala með áfengi vaxi nú þegar dómur sé fallinn um að hún sé ólögleg. Hann kallaði eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu. „Hér er verið að takast á um hvaða mörk gilda, þó að niðurstaðan sé kannski augljós í hugum einhverra. Mér finnst ekki óeðlilegt að bíða eftir því hver niðurstaða Landsréttar verður. Það skiptir miklu máli að það svar liggi fyrir fyrr en seinna og í kjölfarið verði þá hin endanlega niðurstaða orðin ljós,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Ef niðurstaða Landsréttar staðfesti niðurstöðu héraðsdóms sé eðlilegt að brugðist verði við. „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi og það á engu máli að skipta hvort hún er orðin stór í sniðum eða lítil. Yrði þetta hin endanlega niðurstaða þá vænti ég þess og býst við því að viðbrögð lögreglu verði í samræmi við niðurstöðu dómstóla.“ Aðspurð um hvort að gera eigi breytingar á lagaumhverfinu segir hún ekkert slíkt hafa verið rætt. „Þetta mál hefur ekki, eins og fjármálaráðherra hefur bent á, hefur ekki verið sérstaklega til umræðu innan ríkisstjórnar. Þetta er ekki mál sem fjallað er um í stefnuyfirlýsingu sérstaklega. Þannig að það eru engin sérstök merki á lofti um það að þessi lagaumgjörð sé að fara að breytast.“
Áfengi Alþingi Netverslun með áfengi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira