Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. júlí 2026 07:48 Bandaríkjamenn saka Írani um að ráðast á skip sem leggja leið sína um Hormússund. AP Árásir Bandaríkjanna og Íran hvort á annað héldu áfram í nótt. Skotmörk Írana voru herstöðvar í nágrannalöndum en Bandaríkin sögðust hafa hæft meðal annars loftvarnarkerfi Írana.
Árásir Írana beindust að herstöðvum í nágrannaríkjum sínum sem bandaríski herinn hefur áður fengið afnot af. Sex ríki á Persaflóasvæðinu og í nágrenni Íran sögðust hafa orðið fyrir írönskum eldflauga- eða drónaárásum, Katar, Óman, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Jórdanía, Barein og Kúveit. Íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa hæft herstöðvar í bæði Jórdaníu og Kúveit. Katar bauðst lengi vel til að vera eins konar sáttamiðlri svo lengi sem landið yrði ekki fyrir árásunum. Þrír slösuðust í árásunum þar, þar á meðal eitt barn og telja stjórnvöld í Katar að Íranir séu ábyrgir. Bandaríkjamenn sögðust hafa hæft loftvarnarkerfi Írans, ratsjárstöðvar við ströndina, eldflaugar og dróna. Í færslu yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, CENTCOM, á X segir að markmið árásanna hafi verið að draga úr getu Írana til að ráðast á sjómenn og viðskiptaskip sem sigla um Hormússund. Reuters hefur eftir bandaríska hernum að Íranir hafi gert árásir á skip frá Kýpur og Óman sem sigldu um sundið. Sex skip um sundið í gær Bandaríkin og Ísrael hófu að gera árásir á Íran í febrúar og sögðu markmiðið meðal annars vera að koma í veg fyrir að Íranir byggju til kjarnorkuvopn. Vopnahlé tók gildi í apríl og hafa ríkin átt í samningaviðræðum síðan, með einstaka árásum. Bráðabirgðasamkomulag var undirritað í júní sem gilti í sextíu daga. Það breyttist hins vegar í byrjun júlí þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti afturkallaði heimild um sölu á íranskri olíu, sem var hluti af samkomulaginu um endalok átakanna. Einnig hóf bandaríski herinn að gera árásir á Íran á ný. Trump tilkynnti einnig að hann teldi að vopnahléinu væri lokið en samþykkti samt sem áður tillögur Íran um áframhaldandi samræður. Íranir sögðust hins vegar ekki hafa óskað eftir slíkum viðræðum heldur samþykkt að hýsa sáttasemjara frá Katar í höfuðborg sinni. Hormússund hefur verið mikilvægur vettvangur í átökunum en tuttugu prósent af allri olíu heimsins er siglt um sundið. Skip sem eiga leið þar um hafa verið í hættu undanfarnar vikur og sammælast Bandaríkin og Íran ekki um hver fari með raunveruleg yfirráð yfir sundinu. Einnig fara mismunandi sögur af því hvort að sundið sé opið eða lokað en sex skip sigldu þar í gegn í gær, þar á meðal eitt sem flutti íranska olíu.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Katar Jórdanía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira