Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 12. júlí 2026 09:03 Umferð á Hormússundi hefur orðið að einu eldfimasta deilumáli átakanna en um fimmtungur allrar olíu og jarðgass heimsins fór um sundið áður en stríðið hófst. Getty Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi.
Íranir hafi lokað fyrir umferð skipa um Hormússund þangað til „bandarískum afskiptum á svæðinu lýkur,“ að sögn IRGC. Ákvörðunin hafi verið tekin vegna skota í átt að skipi sjóhers Írans á sundinu. Aðgerðastjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) greindi frá því að Bandaríkjaher hefði hafið röð árása á Íran á ný, í þriðja skiptið þessari viku. Árásir hersins hafi beinst að 140 írönskum hernaðarskotmörkum til að „draga úr getu Írans til að ráðast á kaupskip sem sigla frjáls um sundið,“ segir í umfjöllun AP. „Íran fékk enn eitt tækifærið til að sýna fram á að farið væri að viljayfirlýsingunni eftir að hafa verið dregið til ábyrgðar fyrir árásir á kaupskip en hefur aftur brugðist,“ skrifaði CENTCOM í yfirlýsingu sem deilt var á X. IRGC segir að árásir Bandaríkjanna í nótt hafi beinst að strandstöðvum og fjarskiptaturnum á suðurströnd Íran. Íranir hafi því beint árásum sínum að bandarískri stjórnstöð í Jórdaníu og ratsjárstöð í Kúveit sem svar við árásum Bandaríkjahers. Einnig hafi Íran beint spjótum sínum að Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Barein og Óman. Yfirvöld Sameinuðu arabísku furstadæmanna segja loftvarnakerfi landsins hafi verið virkjuð til að verjast árásum Írans en þeir hafi ekki ráðist á ríkið síðan í maí. Enn eykst spennan Síðan Donald Trump lýsti því yfir fyrr í vikunni að viðræður ríkjanna á milli um tímabundið vopnahlé væri úr sögunni hefur spennan aukist. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hefur sakað Bandaríkin um brot á bráðarbirgðarsamkomulagi ríkjanna. Hvað mig varðar þá er bara tímasóun að eiga við þá. Þeir eru lygarar... Það er eitthvað að þeim. Þeir eru klikkaðir. Hvað mig varðar þá er þetta búið,“ sagði Trump í Ankara á miðvikudaginn þar sem leiðtogafundur NATO fór fram fyrr í vikunni. Umferð á Hormússundi hefur orðið að einu eldfimasta deilumáli átakanna en um fimmtungur allrar olíu og jarðgass heimsins fór um sundið áður en stríðið hófst, að sögn AP. Verð á hráolíu hækkaði um tæp sex prósent í kjölfar ummæla Trumps um endalok umræðna um vopnahlé. Bandaríkin afturkölluðu undanþágu frá viðskiptaþvingunum á sölu íranskrar olíu á þriðjudaginn eftir að katörsk og sádiarabísk kaupskip urðu fyrir árásum á Hormússundi sem leiddi til raðar hefndarárása Bandaríkjanna og Írans. Undanþágan, sem heimilaði Íran að selja olíu, var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átakanna á milli Bandaríkjanna og Íran.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin Jórdanía Kúveit Hernaður Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira