Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Jón Þór Stefánsson skrifar 8. júlí 2026 21:34 Ólafur Ragnar Grímsson hélt ræðu á fundi Áfram Ísland og hafa einhverjir látið miður fögur orð um hann falla í kjölfarið. Vísir/Anton Brink Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.
Ræða Ólafs Ragnars á stofnfundi Áfram Íslands, samtaka sem berjast fyrir því að Íslendingar svari neitandi í ágúst, vakti mikla athygli. Sjá nánar: Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Hún virðist hafa vakið upp hörð viðbrögð hjá sumum, en Hafrún segist hafa séð Ólafi líkt við Hitler í tvígang. „Þá erum við komin að endastöð. Ég veit ekki hvort að Satan sé verri en þeir eru svona á pari held ég, þessir tveir,“ sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hún segir fólk vera að fara í manninn, en ekki í boltann í þessari umræðu. „Hvernig var brugðist við hans málflutningi, þar sem að hann var ekki að fara mikið í manninn heldur var bara að lýsa sinni sannfæringu, að það var rosalegt. Og nú er ég ekki að segja að þeir sem að styðja „já“ séu betri eða verri heldur en þeir sem styðja „nei“, af því að það eru örugglega til einhver ógeðis-ummæli um Þorgerði Katrínu eða hvern sem er. Það eru tveir mánuðir í þessa kosningu og Hitler er mættur.“ Hafrún óttast að umræðan sé farin að líkjast því sem fyrirfinnst í Bandaríkjunum. „Ég á vini í Bandaríkjunum og maður sér hvernig umræðan er þar. Hún er alveg svakalega pólariseruð. Og það er ofboðslegt óþol fyrir því að einhver sé ósammála manni. En það er bara allt í lagi að fólk sé ósammála,“ segir hún. Líka talað illa um Þorgerði „Þetta er bara ekki gott finnst mér. Við verðum að taka smá ábyrgð á því sem við segjum og gerum. Við getum alveg talað um hvað okkur finnst um þetta en róum okkur í að fara í manninn.“ Er þetta Ólafur Ragnar sjálfur? Hefur fólk svo miklar og sterkar skoðanir á honum sjálfum? „Það er örugglega partur af því. Hann er ekkert sá eini sem að fær svona. Ég bara nefni hann sem dæmi,“ segir hún. „Ég sá einhvern tímann einhverja skjáskot um það hvað er sagt um Þorgerði Katrínu og það er ekki til fyrirmyndar heldur.“
Ólafur Ragnar Grímsson Samfélagsmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Reykjavík síðdegis Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira