Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Lovísa Arnardóttir skrifar 26. júní 2026 06:31 Skerða átti opnunartímann í hagræðingarskyni en Bjarni segir að hætt verði við það. Vísir/Anton Brink og Einar Bjarni Fritzson, formaður skóla- og frístundaráðs, segir opnunartíma frístundamiðstöðva verða til 17 en ekki 16.30 næsta vetur. Það sé auðvelt lausn í hagræðingu að velta kostnaði yfir á foreldra en nýr meirihluti ætli ekki að gera það.
Borgarstjórn samþykkti í apríl að stytta opnunartíma frístundamiðstöðva en skerðingin var liður í hagræðingu í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 2025 til 2029. Þar var einnig samþykkt að loka sumarfrístund í fimm vikur í stað fjögurra og að hætta þjónustu frístundaheimila á löngum dögum. Skerðingin var eitt baráttumála Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor og því lofað að hún yrði dregin til baka. Bjarni segir í samtali við fréttastofu að það sé verið að leita lausna í þessu máli en að hann vonist til þess að niðurstaða náist í málið á næstu dögum. Ráðningar fyrir frístundaheimilin séu á fullu og því liggi á að finna lausn. „Hundrað daga verkefnalisti nýs meirihluta er óumsemjanlegur og við munum standa við að uppfylla öll verkefni á listanum,“ segir Bjarni. Hann segir verkefnið enn ófjármagnað en að þessi breyting verði afturkölluð. „Við vinnum hörðum höndum að því að leysa þetta mál, að finna lausn sem við sættum okkur við. Við erum að taka við fjármálaramma fyrir árið sem er búið að setja,“ segir hann og að nýr meirihluti vinni hörðum höndum, með skóla- og frístundasviði, að því að finna lausn fyrir næsta skólaár. „Það er ótrúlega mikilvægt að koma þessu að sem fyrst, svo þau geti skipulagt starfið sitt. Við vorum á fundi í morgun um þetta mál og náum vonandi að klára þetta mál og koma þessu frá okkur í ásættanlegan farveg. Stífur rammi um fjármálin Bjarni segir að á hundrað daga listanum sé fjöldi verkefna og þetta sé eitt þeirra sem sé enn verið að koma í farveg. Það verði staðið við það en það verði samt sem áður að finna lausn sem allir eru sáttir við. „Það er ótrúlega stífur rammi utan um fjármálin á sviðinu og þegar það er búið að setja upp rammann þá getur það verið erfitt. En við viljum ekki skerða þjónustu, við viljum einfalda líf foreldra. Það er hluti af okkar stefnu. Það er þægilegt að skera niður þjónustuna og henda því yfir á foreldrana,“ segir hann og en að þannig vilji nýr meirihluti ekki vinna. „Það er hluti af því sem við erum að gera, en það tekur lengri tíma en tvær vikur. Mér finnst við búin að gera ótrúlega mikið á stuttum tíma.“
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Frístund barna Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Vinnumarkaður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira