„Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. júní 2026 08:44 Jóhann Páll, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir óboðlegt hvernig gengið er um náttúruna. Samsett Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar og endurspegli ekki alvarleika brotanna. Ekki sé ólíklegt að lagðar verði fram breytingar á ákvæðum náttúruverndarlaga á viðurlögum við slíkum brotum á næsta löggjafarþingi.
Utanvegaakstur erlendra ferðamanna sem skildu eftir sig djúp hjólför á Emstruleið og við Kötlujökul hefur vakið sterk viðbrögð en leiðsögumenn telja aksturinn vera þann versta sem þeir hafi orðið vitni að í um fjörutíu ár. Margir hafa tekið undir að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri, meðal annars framkvæmdastjóri Landverndar, Björg Eva Erlendsdóttir. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, segir sektarfjárhæðir við utanvegaakstri endurspegli ekki alvarleika brotanna. Þær séu of lágar og hafi því ekki nægileg varnaðaráhrif. Það sé gjörsamlega óboðlegt hvernig gengið er um náttúruna en atvikið um helgina minni okkur á mikilvægi landvörslu og hálendiseftirlits. Hálendið sé ótrúleg verðmæti og segir hann fjörutíu prósent óbyggðra víðerna í Evrópu vera hér á landi sem leggi Íslendingum ákveðnar skyldur á herðar. „Við verðum að vera gríðarlega vakandi fyrir þessu og vakta hálendið okkar,“ segir Jóhann en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis í gær. Ekki sé ólíklegt að á næsta þingvetri verði lagðar fram breytingar á ákvæðum náttúruverndarlaga um viðurlög við slíkum brotum. Fyrsta verk ráðuneytisins í þessum málum sé að taka upp þráðinn við lögreglu um sektarviðmið í samstarfi við Náttúruverndarstofnun. Hvort að breytingar verði gerðar á lögum eða verklagi er óljóst en „svona getur þetta ekki gengið lengur.“ Það sé óhentugt að gera ökutæki upptæk, sérstaklega þegar ferðamenn eiga í hlut. Úrræðið sé svifaseint enda úrskurðað með dómi. Hærri sektir séu vænlegri úrræði og eðlilegt sé að sektarfjárhæð endurspegli þann skaða sem raunverulega veður á umhverfinu og kostnaðinn sem hlýst af því að koma landslaginu aftur í eðlilegt horf.
Utanvegaakstur Umhverfismál Reykjavík síðdegis Lögreglumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34 „Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. 22. júní 2026 17:07 Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34
„Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. 22. júní 2026 17:07
Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07