Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 08:03 Hafþór Júlíus Björnsson með aðdáenda þegar hann reyndi við heimsmetið síðast á Steraleikunum í Las Vegas. Getty/ Greg Doherty Hafþór Júlíus Björnsson var aðalstjarnan þegar nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í afreksíþróttakeppnum tilkynnti um stofnun „Enhanced Breakers“ – nýrrar viðburðaraðar þar sem fremstu íþróttamenn heims munu reyna að slá heimsmet með því að nota frammistöðubætandi efni.
Fyrsta Enhanced Breakers-keppnin fer fram í beinni útsendingu þann 11. júlí næstkomandi í Los Angeles. Þar mun Hafþór Júlíus Björnsson, „leikari, goðsögn og sigursælasti kraftamaður í sögu íþrótta,“ eins og hann er kynntur til leiks, reyna að slá eigið réttstöðulyftumet með 511 kílóa tilraun. Enginn maður hefur nokkru sinni lyft slíkri þyngd áður. Núverandi heimsmet Hafþórs er 510 kíló en hann er heimsþekktur aflraunamaður, á 130 heimsmet, 32 alþjóðlega titla og var sterkasti maður heims árið 2018. Hafþór reyndi við heimsmet á Steraleikunum en tókst þá ekki að lyfta 515 kílóum. Hann ætlaði að slá metið þá um fimm kíló en fer aðeins varlegar núna og lætur sem nægja að reyna bara að bæta það um eitt kíló í þetta skiptið. Hafþór er einnig best þekktur fyrir hlutverk sitt í hinum margverðlaunuðu þáttum Game of Thrones, þar sem hann lék Fjallið. „Þrátt fyrir að vera 37 ára gamall ögrar hann öldruninni og heldur áfram að verða sterkari þökk sé krafti frammistöðubætandi efna,“ segir í fréttatilkynningunni. „Við erum ótrúlega spennt fyrir því að hefja Enhanced Breakers viðburðaröðina,“ sagði Max Martin, forstjóri Enhanced. „Að Hafþór reyni við þyngd sem enginn maður hefur nokkru sinni lyft er nákvæmlega það augnablik sem skilgreinir fyrirtækið okkar – einstakir íþróttamenn sem þrýsta sér út fyrir það sem nokkur hélt að væri mögulegt. Þessi viðburðaröð gefur aðdáendum okkar meira af því sem þeir elska, veitir styrktaraðilum fleiri tækifæri til að virkja og eykur möguleika okkar á samþættingu vöru fyrir Live Enhanced vörukerfið okkar,“ sagði Martin. View this post on Instagram A post shared by Enhanced Games (@enhanced_games)
Aflraunir Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona Sjá meira