Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 21:48 Bjargtangar, yst á Látrabjargi, eru vestasti tangi Íslands. Vísir/KMU Innviðaráðuneytið hefur ákveðið, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst.
Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að búist sé við miklum fjölda fólks á þeim svæðum þar sem almyrkvinn verður mestur og varir lengst, til að mynda á Reykjanesi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Mikill fjöldi gesta gæti skapað verulegt en tímabundið álag á innviði. Farnetsfyrirtækin séu að undirbúa ýmsar ráðstafanir á Reykjanesi og Snæfellsnesi en staðan við Látrabjarg sé viðkvæmari, þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu hafi tafist. „Þar er því þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum til að auka afköst og útbreiðslu farnets í tæka tíð,“ segir í tilkynningunni. „Nauðsynlegt er að ráðast í uppfærslu á fyrirliggjandi fjarskiptainnviðum þar sem ekki næst að ljúka lagningu rafstrengja og ljósleiðara á svæðinu í tæka tíð. Fjarskiptaöryggi á svæðinu við Látrabjarg þar sem álagið verður sem mest verður styrkt með aðkomu farnetsfyrirtækja og stuðningi ráðuneytisins,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Ítrekað er að símtöl í Neyðarlínuna, 112, hafi ávallt forgang í farnetskerfum en þrátt fyrir það sé mikilvægt að styrkja innviði til að tryggja sem besta þjónustu við almenning og styðja við störf viðbragðsaðila.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Fjarskipti Vesturbyggð Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira