Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Agnar Már Másson skrifar 5. júní 2026 18:36 „Og svo að lokum, þau sem eru mér virkilega hjartfólgin, ef þú ferð norður, er Ísland, sem heldur brátt þjóðaratkvæðagreiðslu, og svo Noregur,“ sagði Alexander Stubb, forseti Finnlands. AP/Matthias Schrader Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.
CNBC greinir frá því að Alexander Stubb Finnlandsforseti hafi sagt á orkuráðstefnu í gær að hann vildi stækka Evrópusambandið úr 27 ríkjum í 40. „Á þessari stundu þurfum við að hugsa stórt og landfræðilega. Við verðum að stækka eða að minnsta kosti skapa aðild sem er nógu sveigjanleg til að ná til samtals fjörutíu Evrópuríkja, eða jafnvel ríkja utan Evrópu,“ sagði Stubb en hann hefur áður lýst því að hann vilji fá Kanada inn í Evrópusambandið. „Væri það ekki yndislegt ef Kanada væri 28. ríki Evrópusambandsins frekar en 51. ríki Bandaríkjanna?“ spurði hann og vísaði þar væntanlega til samfélagsmiðlafærslna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta þar sem ýjað var að því að innlima Kanada inn í Bandaríkin. Hann sagði að ESB ætti að horfa til vesturs og fá Bretland, sem formlega yfirgaf sambandið árið 2020, aftur inn í hópinn, eða að minnsta kosti „eins nálægt og mögulegt er“. Forsetinn nefndi allmörg fleiri dæmi um lönd sem gætu gengið inn í Evrópusambandið: Úkraínu, Moldóvu og Georgíu, og jafnvel Tyrkland. Þá nefndi hann einnig Serbíu, Kosóvó, Albaníu, Svartfjallaland, Norður-Makedóníu og Bosníu og Hersegóvínu. „Og svo að lokum, þau sem eru mér virkilega hjartfólgin, ef þú ferð norður, er Ísland, sem heldur brátt þjóðaratkvæðagreiðslu, og svo Noregur,“ sagði Stubb.
Finnland Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira