Sport

Bergrós flutt á sjúkra­hús: „Gat hvorki gengið né talað“

Aron Guðmundsson skrifar
Bergrós lenti í heldur óskemmtilegri lífsreynslu fyrr í dag.
Bergrós lenti í heldur óskemmtilegri lífsreynslu fyrr í dag. Myndir: Bergrós á Instagram

Íslenska CrossFit konan Bergrós Björnsdóttir endaði á sjúkrahúsi í dag og gat hvorki talað né gengið eftir fyrstu grein á móti í Ciudad Real. Hún stefnir á að mæta til leiks í grein númer tvö á mótinu. 

Bergrós segir frá raunum sínum í færslu á samfélagsmiðlum en á mótinu í Ciudad Real er hún er að berjast um sæti á heimsleikum CrossFit.

Í fyrstu grein mótsins endaði Bergrós í 9.sæti og að eigin sögn var um eina af hennar bestu frammistöðum á ferlinum að ræða. 

„Það sem fylgdi hins vegar í kjölfarið var ein af ógnvænlegustu stundum lífs míns,“ skrifar Bergrós í færslu á Instagram

„Til að gera langa sögu stutta gat ég hvorki gengið né talað um tíma. Blóðsykurinn minn sem og blóðsþrýstingurinn mældist allt of lágur og ég missti meðvitund um stund.“

Flytja þurfti Bergrósu á nærliggjandi sjúkrahús og þótti ekki tilefni til frekari inngrips þegar þangað var komið.

„Ég hef það miklu betur núna, er að nærast vel og náði langþráðum lúr. Sé ykkur í næstu keppnisgrein,“ endar hún færslu sína á að skrifa og eigum við því von á að sjá Bergrósu spreita sig áfram á mótinu í kvöld þegar að önnur keppnisgrein tekur við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×