Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Tómas Arnar Þorláksson skrifar 27. maí 2026 15:38 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. vísir/anton VR, LÍV og fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta og standa því í 7,75 prósentum. Þau krefjast þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka svo kjarasamningar haldist.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR og fagfélögunum. „Viðskiptabankarnir skiluðu hátt í 100 milljarða króna hagnaði á síðasta ári eftir skatta. Það samsvarar yfir 320 þúsund krónum á hvern fullorðinn landsmann. Þarna er svigrúm og þarna liggur samfélagsleg ábyrgð bankanna. Bankarnir eiga að taka á sig hluta af byrðum efnahagsástandsins,“ segir í tilkynningunni. Þar er tekið fram að arðsemi eiginfjár allra bankanna hér á landi hafi aukist og vaxtamunur sömuleiðis. Þau segja bankana hagnast á stöðunni eins og hún er á meðan það þrengi að heimilum landsins. „Nú er svo komið að fjórir af hverjum tíu foreldrum á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og geta ekki mætt óvæntum útgjöldum upp á 100 þúsund krónur. Með öðrum orðum er fullvinnandi fólk í þeirri stöðu að ef þvottavélin bilar nær það ekki endum saman um mánaðamótin og jafnvel ekki þau næstu heldur.“ Þau segja bankana bregðast og fara gegn loforðum sínum um að standa saman í baráttunni gegn verðbólgu. „Launafólk mun ekki sætta sig við að bankarnir eða atvinnulífið hlaupist undan merkjum. Við krefjumst þess að vaxtahækkanir síðustu daga verði dregnar til baka, með það að markmiði að kjarasamningar haldi. Stjórnendur bankanna þurfa að sýna almenningi að þeir ætli að axla ábyrgð á ástandinu með launafólki.“
Efnahagsmál Seðlabankinn Kjaramál Verðlag Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira