

Stækkuð sauna er meðal þess sem verður hluti að upplifuninni Skjól í baðlóninu Sky Lagoon á Kársnesi í Kópavogi. Upplifunin verður afhjúpuð á næstu dögum en samkvæmt tilkynningu er um að ræða dýpkun á því sem hingað til hefur verið kallað sjö skrefa Ritúal og notið hefur mikilla vinsælda gesta lónsins.
Einstök stemmning skapaðist á góðgerðartónleikunum, Sungið með sorginni, í Sky Lagoon í gærkvöldi þegar tónlistarfólkið Guðrún Ýr Eyfjörð, eða GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson, Salka Sól Eyfeld, Karl Olgeirsson og DJ Dóra Júlía skemmtu gestum.
Helga María Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Hún tekur við af Dagnýju Pétursdóttur sem hættir störfum í byrjun mars.
Íslensk fyrirtæki glíma við mesta skort á starfsfólki frá því fyrir efnahagshrun. Framkvæmdastjóri Sky Lagoon kveðst vera í keppni við önnur fyrirtæki um að halda í starfsfólk. Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir það ósjálfbært að almenni markaðurinn sé að missa fólk til hins opinbera.
Fyrirtækið sem stendur á bak við Sky Lagoon vill byggja skandinavískt sjávarþorp við strönd Kársnessins. Aðeins eitt púsl vantar og heldur Kópavogsbær því hjá sér þar til deiliskipulagsvinnu er lokið.
Louis Tomlinson, fyrrverandi meðlimur strákasveitarinnar frægu One Direction, heldur fjölmenna tónleika í Origo-höllinni í kvöld. Aðdáendur söngvarans höfðu sumir staðið í röð fyrir utan höllina í þrjá daga. Tónlistarmaðurinn ákvað að undirbúa sig fyrir tónleikanna með því að skella sér í Sky Lagoon.
Hádramatískur tvöfaldur lokaþáttur The Bachelor sem tekinn var upp á Íslandi skildi aðdáendur þáttanna eftir gapandi yfir öllu því sem fór fram. *Höskuldarviðvörun* Í þessari frétt verður talað um það sem gerðist í þættinum og hver hefur verið valin sem næsta Bachelorette.
Tvö hundruð ofuraðdáendur bandarísku raunveruleikaþáttanna The Bachelor gátu vart haldið augunum opnum vegna veðurofsa á Kársnesinu fyrr í kvöld, þar sem þeir voru saman komnir í Sky Lagoon til að horfa á nýjasta þátt seríunnar.
Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon, segir að opnun baðlónsins fyrr á árinu hafi verið draumi líkust en fyrsta mánuðinn var uppselt í baðlónið hvern einasta dag.
Harpa, tónlistar- og menningarhús Reykjavíkur, er í stóru hlutverki í væntanlegri þáttaröð af raunveruleikaþættinum The Bachelor, ef marka má stiklu sem frumsýnd var í dag. Þá lítur einnig út fyrir að piparsveinninn hafi farið með keppendur á stefnumót í Perlunni og Sky Lagoon.
Rannsókn lögreglunnar á andláti í baðlóninu Sky Lagoon á Kársnesi stendur enn yfir.
Maðurinn sem lést í Sky Lagoon á þriðjudag fannst meðvitundarlaus á botni lónsins.
Maðurinn sem lést í Sky Lagoon á sjöunda tímanum í gærkvöldi var íslenskur karlmaður á þrítugsaldri. Maðurinn var gestur í lóninu.
Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar andlát sem varð í Sky Lagoon á Kársnesi í Kópavogi á sjöunda tímanum í gærkvöldi.
Tónlistarmaðurinn og dramatúrgurinn Matthías Tryggvi Haraldsson og söng- og leikkonan Brynhildur Karlsdóttir eru trúlofuð.
Alls hafa 128.892 Íslendingar sótt svokallaða ferðagjöf en 85.079 hafa verið notaðar og 70.778 fullnýttar. Samkvæmt mælaborði ferðaþjónustunnar nemur upphæð notaðra gjafa 411 milljónum króna.
Bríet, Rubin Pollock og Þorleifur Gaukur halda einstaka tónleika þann 7. september í Sky Lagoon. Markmið tónleikanna er að safna í nýstofnaðan sjóð sem nefnist Fjársjóður barna.
Starfsmenn Sky Lagoon munu hætta að gera greinarmun á kynjum varðandi hvað þyki fullnægjandi sundföt. Það er í kjölfar þess að gestur var beðin um að hylja brjóst sín í lóninu um helgina.
Dagný Hrönn Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon segir miklar umræður hafa átt sér stað innan fyrirtækisins eftir að ungri konu var vísað upp úr lóninu fyrir að vera bera að ofan í gær. Hún hefur óskað eftir lögfræðiaðstoð.
Diljá Sigurðardóttur var vísað upp úr Sky Lagoon í dag fyrir að vera ber að ofan. Hún segir starfsfólk lónsins mismuna fólki eftir kyni.
„Ég gæti trúað því að það sé hægt að flokka mig sem frumkvöðul, annars held ég að ég viti ekki enn hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, það er svo margt sem mig langar að gera. Kannski þarf maður ekki að vera neitt heldur bara margt,“ segir Eyþór Guðjónsson einn eiganda Sky Lagoon á Kársnesi, aðspurður um starfstitilinn.
Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu ferðamannastaða hérlendis á síðustu árum og enn bætist í flóru baðstaða sem er ætlað að bjóða upp á eitthvað annað en hina hefðbundnu sundlaugaupplifun.
Einstaklingur sem sótti Sky Lagoon á sunnudag hefur greinst með Covid-19. Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri baðstaðarins, staðfestir þetta og segir að rakningateymið hafi upplýst starfsfólk um stöðuna í gær.
Baðlónið Sky Lagoon opnaði í síðasta mánuði úti á Kársnesi í Kópavogi og hefur nánast verið uppselt í lónið síðan þá.
Á morgun opnar nýtt baðlón á höfuðborgarsvæðinu og Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis kíkti við þar í dag og myndaði aðstöðuna.
Fimm milljarða króna baðlón verður opnað á Kársnesi á morgun. Framkvæmdastjóri segir þetta stærstu fjárfestingu í afþreyingu á höfuðborgarsvæðinu hingað til.
Baðlónið Sky Lagoon á Kársnesi verður opnað á föstudag en baðlónið á að skapa 110 ný störf.
Nature Resort ehf og ÍAV hf. undirrituðu í dag verksamning sem felur í sér að ÍAV verður aðalverktaki við uppbyggingu á baðlóni fyrir Nature Resort ehf við Vesturvör á Kársnesi í Kópavogi.
Heildarverkefninu er skipt í nokkra áfanga og í þeim fyrsta verður framkvæmt fyrir um fjóra miljarða króna.