Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. maí 2026 18:34 Þjóðaratkvæðagreiðslan er á dagskrá þann 29. ágúst. Vísir/EPA Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs.
Þetta kemur fram í nýju nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar þar sem meðal annars er farið yfir hver áhrifin kunna að vera gangi Ísland í Evrópusambandið. Nefndin óskaði einnig eftir kostnaðarmati frá utanríkisráðuneytinu, sem Rúv greindi fyrst frá, en í svari ráðuneytisins segir að hann sé háður nokkurri óvissu. Það sé vegna þess að ekki liggi fyrir hversu langan tíma viðræðurnar muni taka og hvernig þær verða skipulagðar. Í áætlun hefur kostnaðinum verið skipt í þrjá hluta, kostnað utanríkisráðuneytisins, kostnað annarra ráðuneyta og þýðingarkostnað. Í kostnaði utanríkisráðuneytisins er gert ráð fyrir launakostnaði vegna tímabundinnar styrkingar ráðuneytisins og sendiráðsins í Brussel, ferðakostnaði og öðrum kostnaði á borð við aðkeypta þjónustu, kostnað við upplýsingamiðlun og utanumhald samningahópa. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði rúmur 1,1 milljarður króna. „Viðbúið er að einnig falli einhver beinn kostnaður á önnur ráðuneyti. Þó er gert ráð fyrir að utanríkisráðuneyti muni annast greiðslu ferðakostnaðar annarra ráðuneyta sem félli til vegna samningaviðræðna,“ segir í nefndaráætluninni en áætlaður kostnaður í þessum lið eru 175 milljónir króna. Að lokum eru sex hundruð milljónir króna áætlaðar í þýðingarkostnað þar sem gert er ráð fyrir því að þýða þurfi allt regluverk Evrópusambandsins yfir á íslensku. Það eru um þrjátíu til fimmtíu þúsund blaðsíður. „Gert er ráð fyrir að verulegum hluta þessara þýðinga yrði útvistað, en óhjákvæmilegt er þó að styrkja þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis vegna umfangs verkefnisins. Þá er mögulegt að hægt verði að afla stuðnings frá ESB vegna þessa kostnaðar, eins og reyndin var í viðræðunum 2009–2013, en það mun ekki skýrast fyrr en fyrir liggur hvort af viðræðum verður. Komi til aðildar mun kostnaður vegna þýðinga alfarið falla á ESB.“ Kostir og gallar útlistaðir Nefndin óskaði einnig eftir sérfræðiáliti Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, meðal annars um möguleg áhrif aðildar Íslands að Evrópusambandinu og síðar upptöku evru. Hagfræðistofnunin telur helstu jákvæu áhrif aðildar að sambandinu og upptöka evru á hagvaxtargetu íslenska hagkerfisins vera minni viðskiptakostnaður, aukin samkeppni, minni gengisáhætta og betri skilyrði fyrir fjárfestingu og útflutning. Þar sem Ísland er þegar aðili að innri markaði Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn yrði stærsti munurinn við fulla aðild vera í landbúnaði og sjávarútvegi. Einnig gæti upptaka evru haft áhrif á viðskipti og fjárfestingu. „Á móti kemur að peningastefnan verður ekki sérsniðin að íslenskum aðstæðum og gengið getur ekki lengur verið aðlögunartæki. Þannig gætu t.d. sveiflur í atvinnuleysi aukist við efnahagsáföll,“ segir í álitinu. Einnig gæti aðild að Evrópusambandinu lækkað vöruverð í ákveðnum vöruflokkum, sérstaklega þar sem tollar, innflutningshindranir eða veik samkeppni halda verðlagi uppi. Áhrifin yrðu mismikil eftir vörum en einhverjar gætu jafnvel hækkað í verði þar sem fríverslunarsamningur við Kína og fleiri þjóðir myndi falla niður. „Þess í stað kæmu tollar ESB ef sambandið hefði ekki gert samning við viðkomandi land.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður EES-samningurinn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Sjá meira