Upp­gjör: Haukar - Njarð­vík 77-69 | Haukar lifa

Árni Jóhannsson skrifar
Amandine Toi átti nokkrar stórar körfur í kvöld.
Amandine Toi átti nokkrar stórar körfur í kvöld. Vísir / Hulda Margrét

Njarðvík tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna fyrr í kvöld. Haukar sáu til þess að úrslitaeinvígið fari í fjóra leiki allavega. Heimakonur læstu varnarleiknum algjörlega og fóru með 77-69 sigur. Fjórði leikurinn verður á sunnudag í Njarðvík.

Catherine Masa kom með orku af bekknum. Kveikti á áhlaupi.Vísir / Hulda Margrét

Njarðvíkingar byrjuðu mikið betur og komust í 4-13 forskot strax í upphafi leiksins. Þá var Catherine Masa skipt inn á fyrir Tinnu Guðrúni og það breytti sóknarleiknum hjá Haukum. Haukar fóru á 17-2 sprett og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta leikhlutann 20-15. 

Sigrún Björg Ólafsdóttir með boltann en hún var mikilvægur hlekkur í vörninni. Vísir / Hulda Margrét

Haukar héldu uppteknum hætti og voru komnar með gott tak á Njarðvíkingum sem gekk ekkert að komast á körfuna og opnu skotin sem sköpuðust fóru harkalega í hringinn. Það hleypti lofti úr Njarðvíkingum og Haukar juku muninn upp í 13 stig þegar gengið var til búningsherbergja. 

Hart barist í kvöld.Vísir / Hulda Margrét

Krystal-Jade Freeman var stórkostleg og var komin með 14 stig og átta fráköst í hálfleik. Brittany Dinkins var með 10 stig en aðrir leikmenn áttu í vandræðum. Hittni Njarðvíkinga var léleg og höfðu þær hitt tveimur af 13 þriggja stiga skotum í fyrri hálfleik.

Brittany að reyna að hvetja sínar konur áfram.Vísir / Hulda Margrét

Leikurinn datt í jafnvægi í þriðja leikhluta að ýmsu leyti. Varnarleikur Hauka hélt og það kom á daginn að Njarðvíkingar nýttu stoppin sín og sóknarfráköst hrikalega. Á meðan refsuðu Haukar fyrir mistök Njarðvíkinga og komust mest í 15 stiga mun en Njarðvík minnkaði muninn niður í 12 stig áður en lokaleikhlutinn hófst 61-49. Manni fannst eins og Njarðvíkingar myndu ekki ná neinu til baka því Haukar voru með mjög gott tak á gestunum.

Njarðvíkingar byrjuðu fjórða leikhlutann á tveimur þristum og minnkaði muninn niður í sex stig og það var langt síðan munurinn var svona lítill. Haukar náðu þó að svara og viðhalda forskotinu en Njarðvíkingar héldu áfram og reyndu eins og þær gátu til að minnka muninn. Þær náðu ekki að grípa tækifærin nógu vel þegar þau gáfust og nýttu hvorki stolna bolta né sóknarfráköst nógu vel. 

Dani Rodriguez hefur oft haft það náðugra en í kvöld.Vísir / Hulda Margrét

Haukar náðu aftur vopnum sínum og héldu gestunum frá sér í seilingarfjarlægð og náðu að sigla heim 77-69 sigri þegar yfir lauk. Þær fá því annað tækifæri en fjórði leikur fer fram á heimavelli Njarðvíkur á sunnudaginn næsta.

Haukar fagna í leikslok.Vísir / Hulda Margrét

Atvik leiksins

Þau eru tvö í raun og veru. Þegar Catherine Masa kom inn á í byrjun leiks og 17-2 sprettur Hauka hófst. Síðar í leiknum negldi Tinna Guðrún þrist niður til að koma muninum aftur í 10 stig, 72-62, eftir að Njarðvíkingar þjörmuðu að Haukum. Það algjörlega innsiglaði sigurinn í raun og veru.

Tinna Guðrún á fleygiferð. Stigin hennar skiptu máli í kvöld.Vísir / Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Krystal-Jade Freeman var langbest í kvöld. Endaði hún með 26 stig og 14 fráköst. Það skilaði 35 framlagspunktum sem var það hæsta í kvöld.

Krystal-Jade Freeman einbeitingin uppmáluð.Vísir / Hulda Margrét

Hjá Njarðvíkingum var Brittany Dinkins stigahæst með 21 stig en mér fannst skotleikur Njarðvíkinga vera afleitur og það kann ekki góðri lukku að stýra. Þær hittu úr 32% skota sinna sem verður að batna til að vinna þetta góða varnarlið Hauka.

Brittany Dinkins náði ekki að leiða sínar konur til sigurs.Vísir / Hulda Margrét

Umgjörð og stemmning

Aðdáendur Haukar létu vel í sér heyra.Vísir / Hulda Margrét

Vel mætt hjá báðum liðum og hávaðinn við hættumörk. Alveg eins og það á að vera.

Ljónahjörðin í gír.Vísir / Hulda Margrét

Dómararnir

Þetta var hefðbundin úrslitakeppnisframmistaða. Stundum ekkert dæmt og svo á eitthvað minniháttar. Báðir þjálfarar bálreiðir út í þá en ekkert stórvægilegt að þessari frammistöðu.

Emil Barja var mjög reiður á köflum út í dómarana.Vísir / Hulda Margrét
Emil Barja reiðir til höggs.Vísir / Hulda Margrét

Viðtöl:

Emil: Í kvöld vorum við þéttar og sterkar

„Bara varnarleikurinn. Mér fannst varnarleikurinn alveg frábær“, sagði Emil Barja þjálfari Hauka þegar Andri Már Eggertsson spurði hann út í muninn á milli sigurleiksins í kvöld og hinna leikjanna.

„Einn á einn vörnin okkar hefur verið að klikka. Við höfum verið að missa menn framhjá okkur en í kvöld vorum við þéttar og sterkar.“

Hvað fannst Emil ganga vel í vörninni í fyrri hálfleik þegar Haukar héldu Njarðvík í 30 stigum?

„Bara þetta akkúrat. Einn á einn vörnin. Jú Paulina skorar nokkrar körfur á okkur en hún er náttúrlega góður leikmaður. Við vorum bara nokkuð solid. Þær hefðu örugglega getað skorað meira, klikkuðu á nokkrum þristum en heilt yfir var vörnin okkar mjög góð.“

Njarðvíkingar byrjuðu 4-13 en Haukar svöruðu með 17-2 áhlaupi og litu ekki um öxl. Hvað fannst Emil breytast?

„Ég veit það ekki ef ég á að vera hreinskilinn. Mér fannst við koma svolítið of rólegar út í leikinn en svo þarf bara eitt augnablik, einn þrist eða eitthvað til að kveikja á okkur.“

Haukar eru að reyna að keyra upp hraðann og Brittany Dinkins og Danielle Rodriguez spiluðu allan síðasta leik. Er það að koma Njarðvíkingum í koll?

„En þær er samt að skora fullt af körfum. Þær virðast ekki vera neitt þreyttar þó við séum að djöflast í þeim allan leikinn. Virkilega góðir leikmenn. Kannski voru nokkur skot þarna í lokin sem voru of stutt út af þreytu en við höfum spilað svona á móti öllum liðunum og ætlum að halda því áfram.“

Hvernig fannst Emil sínir leikmenn bregðast við þegar Njarðvík náði áhlaupi og minnkaði muninn niður fyrir 10 stig í fjórða leikhluta?

„Bara vel. Það kom skrýtið panic í okkur of oft þegar við erum komnar yfir. Við höldum að við séum komnar með sigurinn og forum að flýta okkur og sætta okkur við fyrsta skotið. Ég veit ekki hversu oft ég hef verið pirraður yfir lélegum skotum hérna en það er gott að við gátum klárað þetta.“

Amandine Toi setti niður sniðskot þegar leik var lokið og var Emil spurður að því hvort það hafi verið svar við því þegar Brittany Dinkins setti niður samskonar skot í loknum leik í fyrsta leik.

„Ég veit ekki hvort hún hugsi þannig. Leikurinn er 40 mínútur þannig að bara flott hjá henni.“

Einar Árni: Ég tel mig ekki vera galinn

Einar Árni Jóhannsson hefði þurft að fá fleiri skot ofan í.Vísir / Hulda Margrét

Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur var vitaskuld ósáttur við tap sinna kvenna í kvöld en hvar fór leikurinn?

„Bara léleg hittni svona þegar ég horfi á mitt lið. Haukar spila að sjálfsögðu góða vörn en við skjótum 33% af gólfinu og þvú vinnur ekki körfuboltaleiki þannig.“

Njarðvíkingar byrja á því að komast í 4-13 forskot en Haukar svöruðu því með 17-2 áhlaupi og litu aldrei til baka eftir það. Hvað fannst Einari breytast þar?

„Maður þarf að skoða þetta aftur. Við vorum samt að hlaupa kerfin okkar vel í byrjun en eftir fyrri hálfleikinn þá stóð upp úr að sóknarleikurinn var ekki góður. Við vorum ekki að hlaupa kerfin okkar vel og of oft vorum við ekki að hlaupa nein kerfi. Við létum ýta okkur út úr okkar aðgerðum og fórum að flýta okkury. Við töpuðum átta boltum í fyrri hálfleik sem er mjög mikið miðað við síðustu leiki. Þessi sprettur og staðreyndin að þær skora síðustu 14 stigin sem gerði það ða verkum að við þurftum að elta allan síðari hálfleikinn. Við náðum aldrei neinum takti í okkar leik. Náðum aldrei stoppum og 2-3 körfum í röð og því fór sem fór.“

Hvernig fannst Einari að eiga við varnarleik Hauka í kvöld?

„Þær voru góðar í kvöld og spiluðu fastann og þéttann varnarleik. Það á ekki að koma okkur á óvart. Það þýðir bara að við þurfum að halda einbeitingu og vera agaðar. Við þurfum að búa okkur til góð skot í þolinmæði en það var skortur á því í dag. Þegar leið á leikinn og við vorum að fá ágætis skot þá voru þau ekki að detta. Það var eitthvað taktleysi. Nú forum við í endurheimt og skoðum þennan leik vel því okkur finnst fullt af hlutum sem við getum gert betur sóknarlega.“

Brittany Dinkins virkaði á köflum þreytt og vera hálfpartin vera að hvíla sig inn í leiknum. Finnst Einari vera að draga af henni?

„Nei ég hef ekki áhyggjur af henni. Hún er fagmaður og hugsar svo vel um sig. Við erum bara í endurheimtarfasa á milli leikja. Það koma samt augnablik þar sem hún virkaði ekki upp á sitt besta og ég skil hvert þú ert að fara. Það er bara verið að djöflast í henni upp allan völlinn og ég reikna ekki með henni eiturferskri þegar kemur í fjórða leikhluta, ekki frekar en öðrum leikmönnum, því það er mikil orka og djöfulgangur í báðum liðum.“

Er komið eitthvað stress í liðið? Það er náttúrlega erfiðasta skrefið eftir.

„Stress í liðið“, sagði Einar hlessa á spurningunni áður en hann hélt áfram. „Nei það finnst mér ekki. Við þurfum að bera virðingu fyrir Haukum og þú aðallega því ég ber feyki mikla virðingu fyrir þeim. Þær voru að spila á sínum heimavelli með allt undir. Við höfum verið í flóknari stöðu nýlega verandi 0-2 undir og þurfa að gera allt til að lenda ekki í sumarfríi. Ef þú hefðir spurt mig fyrir einvígið hvort ég myndi reikna með að vinna Hauka 3-0 þá tel ég mig ekki vera galinn þannig að ég hefði ekki svarað því játandi. Við þurfum að hafa mikið fyrir hlutunum og nú er staðan bara 2-1 og við forum heim, söfnum kröftum og við vitum að við getum spilað töluvert betur á sunnudaginn og það er það sem við ætlum að gera.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira