Íslenskur Counter Strike-meistari fékk stjörnumóttökur í Kasakstan Þórarinn Þórarinsson skrifar 13. maí 2026 13:02 Þorsteinn byrjaði að keppa í Counter Strike sextán ára gamall og níu árum síðar er THOR stjarna í rafíþróttaheiminum sem gefur eiginhandaráritanir á alþjóðlegu stórmóti og keppir með háskólaliði Fischer Collage þar sem hann stundar nám sem afreksíþróttamaður á fullum skólastyrk. Mynd/Aðsend „Þrátt fyrir erfið úrslit var þetta ein magnaðasta reynsla lífs míns,“ segir Þorsteinn Friðfinnsson, sigursælasti rafíþróttamaður Íslands, sem var að ljúka keppni á stórmótinu PGL Astana með Counter Strike-liði Fisher Collage í Boston þar sem hann dvelur á fullum námsstyrk sem afreksíþróttamaður.
Sextán lið, sem teljast til þeirra bestu í heimi í þeim rómaða skotleik Counter Strike, mætast á PGL Astana sem hófst í höfuðborg Kasakstan á laugardaginn en Þorsteinn er fyrsti íslenski rafíþróttamaðurinn sem keppir á jafn stóru móti. Þá brýtur Fisher Collage einnig blað í sögunni þar sem háskólalið hefur ekki komist á mót af þessari stærðargráðu áður en PGL Astana er sannkallað risamót í rafíþróttaheiminum og í því sambandi má benda á að heildarupphæð verðlaunafjár nemur 1,6 milljónum dollara, eða um það bil 196 milljónum íslenskra króna. Mótinu lýkur mánudaginn 18. maí en Þorsteinn og Fisher Collage luku hins vegar keppni í gær eftir þrjá tapleiki. Hann er þó óbugaður og segir þetta engu breyta um að mótið og dvöl hans í Kasakstan hafi verið algerlega ógleymanleg upplifun. Engar afsakanir „Það eitt að fá tækifæri til að keppa á svona stóru móti gegn bestu liðum heims var draumi líkast. Bara það að standa við hlið Counter Strike-goðsagna eins og „karrigan“ og „FalleN“ var eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að myndi gerast þegar ég byrjaði að spila Counter Strike,“ segir Þorsteinn sem í rafíþróttaheiminum er þekktari undir spilaranafninu „THOR“. „Úrslitin voru vissulega vonbrigði þar sem okkur tókst ekki að vinna einn einasta leik og ég er alls ekki sáttur við frammistöðu okkar. Þótt aðstæðurnar hafi verið erfiðar tel ég að við hefðum átt að geta gert betur,“ segir Þorsteinn og bendir á að einn liðsfélaga hans hafi veikst strax eftir komuna til Kasakstan og annar liðsmaður hafi ekki átt heimangengt og Fisher Collage hafi því þurft að spila með einn lánsmann. „Sem lið áttum við að geta sýnt meira og geta gert betur,“ segir Þorsteinn sem slær þó hvergi á kröfurnar til sjálfs sín og félaga sinna og segist ekki vilja fela sig bak við afsakanir. Óbilandi sjálfstraust Gamall liðsfélagi Þorsteins, Kristján „kruzer“ Finnsson, segir hann þó mega vel við una enda hafi hann sýnt kunnuglega meistaratakta í mótbyrnum sem mætti Fisher Collage í leikjunum þremur. „Þorsteinn er einn af mínum bestu vinum svo ég er fyrst og fremst bara ótrúlega stoltur og ánægður fyrir hans hönd. Hann missir aldrei sjálfstraustið eins og gerist oft hjá spilurum þegar hallar undan fæti og barist er í þröngri stöðu.“ Kristján nefnir til dæmis að í stöðunni 6-3 gegn The Huns, í þriðja og síðasta leik liðsins, hafi Fisher Collage unnið svokallaða „spar lotu“ þvert gegn gangi leiksins ásamt því að vinna lotuna þar á eftir en í báðum þeim lotum hafi ákvörðunartaka og tímasetning Þorsteins riðið baggamuninn.„Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir því hversu þungt andlegi þátturinn vegur hjá spilurum sem komnir eru á það stig sem hann er að spila á. Að vera að spila uppi á sviði þar sem mörg hundruð þúsund manns eru að fylgjast með.Þar líður Steina best og þar liggur munurinn á honum og öðrum spilurum, gæinn er bara leikmaður sem spilar einstaklega vel undir pressu, sannkallaður „clutch“-spilari á mikilvægum augnablikum þar sem allt er undir. Steini er okkar eini atvinnumaður í Counter-Strike og er þjóðinni og íslenska rafíþróttasamfélaginu til sóma sem fulltrúi landsins á stórmótum út um allan heim.“ Upplifði stjörnudrauminn Þrátt fyrir vonbrigðin á rafræna vígvellinum segir Þorsteinn upplifunina utan hans hafa verið „sturlaða“ og hann hafi varla getað hreyft sig án þess að vera beðinn um eiginhandaráritun eða mynd. „Ég bjóst aldrei við því að unglingar í Kasakstan ættu eftir að elta mig um verslunarmiðstöðvar til þess að biðja mig um eiginhandaráritanir og myndir. Ég gaf líklega eitthvað í kringum 200 áritanir og stillti mér upp á álíka mörgum myndum með aðdáendum.“Þorsteinn er 25 ára gamall og óumdeilt einhver allra besti Counter Strike-spilari sem Ísland hefur alið og í fyrra skilaði færni hans í leiknum honum, fyrstum Íslendinga, í háskólanám í Bandaríkjunum á fullum námsstyrk. Hann byrjaði að keppa í leiknum sextán ára og skapaði sér nafn, bæði hér heima og erlendis, meðal annars með því að vinna alla mögulega titla á Íslandi með liði sínu, Dusty. Eftir að hafa leitt liðið til sigurs á Íslandsmeistaramótinu á síðasta ári lá leiðin til Boston þar sem hann stundar nám í verkefnastjórnun, keppir með Counter Strike-liði skólans og fikrar sig nær takmarkinu um atvinnumennsku á efsta stigi í Counter Strike. Háar fjárhæðir í húfi PGL Astana er, þrátt fyrir þrjá tapleiki, engu að síður skref í þá átt en verðlaunaféð fyrir tvö neðstu sætin á mótinu nemur 8000 dollurum, eða tæpri milljón íslenskra króna, á meðan sigurliðið hreppir 256.000 dollara, rúmar 32 milljónir króna.„Ég mun varðveita minninguna um þetta mót í Kasakstan um ókomin ár og vona innilega að þetta sé ekki síðasta skiptið sem ég fæ tækifæri til að keppa á móti sem þessu,“ segir Þorsteinn sem er hvergi nærri hættur.
Rafíþróttir Dusty Ljósleiðaradeildin Mest lesið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Fleiri fréttir Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Sjá meira