Kvæðið Lilja og Grettissaga meðal dýrgripa sem Svíar lána til Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 11. maí 2026 21:21 Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, í Eddu í dag. Sigurjón Ólason Einhverjir merkustu dýrgripir íslenskra fornsagna, fimm handrit sem fengin eru að láni frá Svíþjóð, verða til sýnis í Eddu, húsi íslenskunnar, næstu sex mánuði. Handritin voru tekin upp úr kössunum í Árnastofnun í dag.
Í fréttum Sýnar mátti sjá eftirvæntinguna sem ríkti í Eddu upp úr hádegi þegar tveir sænskir forverðir rúlluðu handritunum inn í traustum töskum en öryggiskröfur Svía meina okkur að sýna andlit þeirra. Kannski var enginn spenntari að sjá töskurnar opnaðar en forstöðumaður Árnastofnunar, Guðrún Nordal. Guðrún Nordal skoðar fyrsta handritið sem tekið var upp úr kössunum. Ingibjörg Þórisdóttir, sviðsstjóri miðlunarsviðs Árnastofnunar, myndar það sem fram fer.Sigurjón Ólason „Hjartað fór af stað sko, - að slá. Þetta er mikil stund og það er ótrúleg greiðvikni og rausnarskapur af þessum sænsku söfnum að lána þessa dýrgripi og treysta okkur fyrir þeim. Við fáum að hafa handritin í sex mánuði. Svo það er góður tími fyrir fólk að koma að skoða þau og önnur handrit sem hér eru. En þetta var einstök stund og við erum auðvitað bara mjög glöð,“ sagði Guðrún Nordal hér í frétt Sýnar: Sýningin verður opnuð almenningi klukkan tíu í fyrramálið. Eftir hádegi verður málþing í Eddu um sögu þeirra og hvernig á því stóð að þau fóru úr landi. Þetta eru alls fimm handrit. Þau voru flutt frá Íslandi á 17. öld en varðveittust í Svíþjóð. Þeirra á meðal er Uppsala Edda, eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Sum handritin þykja afar fögur, eins og Bergsbók. Í henni eru Ólafs saga Tryggvasonar og Ólafs saga helga eftir Snorra Sturluson, en einnig kvæðið Lilja.Sigurjón Ólason Elsta handritið er frá því í kringum 1200 og geymir einhvern elsta texta sem til er á íslenskri tungu. Það kallast Hómilíubókin. „Þar eru gamlir textar sem við skiljum enn. Börn skilja og við skiljum enn þennan texta. Þannig að það er ótrúlegt að fá það handrit að láni. Ef ég ætti að segja að eitt væri merkast þá er það Hómilíubókin,“ segir forstöðumaður Árnastofnunar. Það handrit er svo gamalt að Snorri Sturluson gæti hafa lesið það sem ungur maður. Árnastofnun er í Eddu við hlið Þjóðarbókhlöðunnar.Sigurjón Ólason „Hér er líka mjög merkilegt Grettissöguhandrit, eitt af lykilhandritum Grettissögu,“ segir Guðrún. Þarna er elsta handritið að kvæðinu Lilju, sem allir vildu kveðið hafa. „Hún er hérna inni á milli Ólafs sögu Tryggvasonar og Ólafs sögu helga, ásamt fleiri kvæðum eins og Geisla og fleiri merkilegum kvæðum,“ segir Guðrún um leið og hún sýnir okkur eitt glæsilegasta handritið. Bergsbók er talin rituð um eða eftir árið 1400. Hún er varðveitt í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. Sigurjón Ólason „Þannig að hér eru á ferðinni bara algjörir dýrgripir.“ Tvö handritanna koma úr háskólabókasafninu í Uppsölum: Uppsala-Edda og handrit Grettissögu, sem er frá 15. öld. Hin þrjú koma úr Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi: Íslenska hómilíubókin, sem er eitt elsta handrit sem varðveist hefur frá Íslandi; Bergsbók, glæsilegt handrit sem geymir sögur konunganna Ólafs Tryggvasonar og Ólafs helga auk kveðskapar; og Codex Sparfvenfeldianus, sem er merkilegt Edduhandrit frá 17. öld. Málþingið í Eddu á morgun, 12. maí, stendur yfir milli klukkan 14 og 16. Ávörp flytja Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jessica Olausson, staðgengill sendiherra Svía á Íslandi, og Guðrún Nordal. Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor segir frá láni á íslenskum handritum frá Svíþjóð og erindi flytja Mats Malm, prófessor og ritari Sænsku akademíunnar, Emma Hagström Molin dósent og Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor.
Íslensk fræði Bókmenntir Svíþjóð Handritasafn Árna Magnússonar Fornminjar Íslensk tunga Menning Háskólar Söfn Tengdar fréttir „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Ómetanlegur fjársjóður norrænna miðaldabókmennta er nú til sýnis á Íslandi í fyrsta sinn. Gripurinn, sem rekur uppruna til Íslands, hefur verið varveittur á meginlandi Evrópu í nokkrar aldir en almenningi gefst nú kostur á að berja gripinn augum. 12. ágúst 2025 20:00 Handritin öll komin á nýja heimilið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur nú flutt öll handrit, sem hún hefur til varðveislu, í nýtt öryggisrými í Eddu við Arngrímsgötu 5. 15. janúar 2025 13:20 Þjóðinni muni þykja mjög vænt um nafnið Hús íslenskunnar verður vígt í dag og nafn þess, sem mikil leynd hvílir yfir, opinberað. Menningarráðherra segir daginn marka tímamót fyrir íslenska tungu. Þá séu fleiri handrit á heimleið frá Danmörku sem sýnd verða í húsinu strax á næsta ári. 19. apríl 2023 12:00 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Sjá meira
„Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Ómetanlegur fjársjóður norrænna miðaldabókmennta er nú til sýnis á Íslandi í fyrsta sinn. Gripurinn, sem rekur uppruna til Íslands, hefur verið varveittur á meginlandi Evrópu í nokkrar aldir en almenningi gefst nú kostur á að berja gripinn augum. 12. ágúst 2025 20:00
Handritin öll komin á nýja heimilið Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur nú flutt öll handrit, sem hún hefur til varðveislu, í nýtt öryggisrými í Eddu við Arngrímsgötu 5. 15. janúar 2025 13:20
Þjóðinni muni þykja mjög vænt um nafnið Hús íslenskunnar verður vígt í dag og nafn þess, sem mikil leynd hvílir yfir, opinberað. Menningarráðherra segir daginn marka tímamót fyrir íslenska tungu. Þá séu fleiri handrit á heimleið frá Danmörku sem sýnd verða í húsinu strax á næsta ári. 19. apríl 2023 12:00