Hvít-Rússar fái fullt keppnisleyfi en Rússar enn til rannsóknar Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. maí 2026 17:38 Rússneska fánanum hefur ekki verið flaggað á Ólympíuleikum síðan í Sochi árið 2014. Martin Rose/Getty Images Alþjóðaólympíusambandið (IOC) hefur ráðlagt aðildarsamböndum að lyfta öllum takmörkunum á keppendur frá Hvíta-Rússlandi en láta núverandi stöðu gilda áfram um íþróttafólk frá Rússlandi.
IOC tilkynnir um þetta í ráðleggingum til alþjóða íþróttasambanda sem birtust á heimasíðu sambandsins. Sum íþróttasambönd hafa þó tekið af skarið, alþjóða sundsambandið hefur til dæmis gefið íþróttafólki frá báðum löndum fullt keppnisleyfi á ný. Íþróttafólki frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi var bannað að keppa í alþjóðlegum keppnum frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Árið 2023 var íþróttafólki frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi leyft að keppa en aðeins undir hlutlausum merkjum. Í tilkynningunni tekur IOC fram að sambandið vilji ekki refsa íþróttafólki fyrir aðgerðir stjórnmálafólks, þar með talinn stríðsrekstur. Þá er einnig tekið fram að síðan árið 2023 hafi íþróttafólk frá Hvíta-Rússlandi fengið að keppa undir hlutlausum merkjum, meðal annars á Ólympíuleikunum í París 2024 og Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina árið 2026, án vandræða. Samt sem áður er aðildarsamböndum ráðlagt að leyfa Rússum ekki að keppa aftur fyrir hönd Rússlands. IOC segir lyfjamisferli Rússa hafa áhrif á þá ákvörðun. Sambandið sé enn með mál Rússlands til rannsóknar. Rúmlega þrjú hundruð Rússar voru nýlega dæmdir í keppnisbann í kjölfar rannsóknar á gögnum frá lyfjaverksmiðju í Moskvu frá árinu 2019. Ákvörðunin er tekin nú skömmu áður en inntökuferli fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028 hefst en hefur ekki úrslitavald um hvort Rússar fái að keppa fyrir hönd Rússlands þar.
Ólympíuleikar Lyfjamisferli Rússa Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Innrás Rússa í Úkraínu Belarús Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Fleiri fréttir „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Sjá meira