Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 5. maí 2026 11:34 Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir bæjarbúa svekkta yfir þeim fréttum að matvöruverslun bæjarins sem hefur verið rekin undir merkum Kjörbúðarinnar sé að loka í þessum mánuði.
Bæjarstjórinn, Jón Páll Hreinsson, segir að fólk sé aldrei sátt við það þegar þjónustan skerðist. Hann segir bæjarbúa vera vana slíku þó að yfirleitt hafi það verið stofnanir á vegum ríkisins sem hafi verið að hverfa á braut. „Það er í þessu eins og verið hefur í gegnum tíðina, að ég hef engar áhyggjur af Bolvíkingum. Við erum einstaklega flink í að bjarga okkur,“ segir Jón Páll. „Það vill svo til að það er önnur búð hér í bæ, Bjarnabúð, og ég talaði í morgun við hana Stefaníu sem er bara mjög bjartsýn. Þau hjónin hafa þjónustað Bolvíkinga í áratugi og munu gera það áfram þannig að það er ekki svo að það muni ekki fást mjólk, eða brauð, eða jógúrt frá Örnu hér í bænum.“ Jón Páll segir að þvert á móti sé blússandi gangur atvinnulífinu í Bolungarvík og mikil stemmning. „Laxeldið hefur verið að byggjast upp, mjólkurvinnslan Arna er gríðarlega sterk og fiskvinnslan Jakob Valgeir hefur verið að fjárfesta og efla sína starfsemi, og núna er strandveiðin að hefjast þannig að það er allt í hvínandi botni í Bolungarvík.“ Bæjarstjórinn segir þó vissulega leiðinlegt að sjá þegar stór fyrirtæki hafi ekki trúa á rekstri á landsbyggðinni. „Ég velti fyrir mér hver sé stefna stærri fyrirtækja þegar þau gefast upp á landsbyggðinni, ég er ekki viss um að það sé góð stefna til framtíðar,“ segir Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri í Bolungarvík.
Bolungarvík Verslun Matvöruverslun Tengdar fréttir Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Kjörbúðin í Bolungarvík lokar um miðjan mánuðinn. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina tekna eftir ítarlega skoðun en búðin hafði verið rekin með tapi í lengri tíma. 4. maí 2026 18:38 Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira
Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Kjörbúðin í Bolungarvík lokar um miðjan mánuðinn. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina tekna eftir ítarlega skoðun en búðin hafði verið rekin með tapi í lengri tíma. 4. maí 2026 18:38