Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. maí 2026 21:52 Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæsti maður FH-inga í kvöld. Vísir/Anton Brink FH og Valur munu mætast í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir dramatískan sigur FH-inga í tvíframlengdum fjórða leik, 37-36. Heimamenn í FH mættu vel stemmdir til leiks og skoruðu fimm af fyrstu sex mörkum leiksins. Valsmenn héldu þó ró sinni og í stað þess að taka leikhlé treysti Ágúst Þór Jóhannesson, þjálfari liðsins, leikmönnunum að finna út úr málunum. Það gekk heldur betur vel og Valsmenn voru fljótir að minnka muninn niður í eitt mark. Ekki tókst Valsliðinu þó að jafna metin og FH-ingar héldu forskoti sínu. Heimamenn voru með yfirhöndina svo gott sem allan fyrri hálfleikinn og þeirra sóknaraðgerðir virtust að öllu leyti auðveldari en sóknaraðgerðir Valsmanna. Í ofanálag var varnarleikur Vals ekki að halda nógu vel og því fylgdi lítil sem engin markvarsla. FH-ingar héldu sér því þremur til fjórum mörkum yfir það sem eftir lifði hálfleiks og mark frá Ómari Darra Sigurgeirssyni á lokasekúndunum sá til þess að heimamenn leiddu 19-15 þegar liðin gengu til búningsherbergja. FH-ingar höfðu ekki jafn góða stjórn á leiknum í seinni hálfleik og þeim fyrri. Valsmenn náðu líka að finna fleiri stopp varnarlega og með því fylgdi betri markvarsla. Það tók gestina í Val þó dágóða stund að ná að brúa bilið og þeir náðu ekki að jafna fyrr en í stöðunni 24-24, en það var í fyrsta skipti síðan í stöðunni 1-1 sem var jafnt. Heimamenn náðu þó forystunni á ný og leiddu með tveimur til þremur mörkum næstu mínútu. Það er, alveg þar til að fimm mínútur voru til leiksloka, en þá fundu Valsmenn taktinn almennilega á ný. Skemmst er frá því að segja að Valsmenn skoruðu síðustu þrjú mörk leiksins, þrátt fyrir að klikka á tveimur skotum í lokasókninni sinni, og tryggði sér framlengingu á dramatískan hátt. Ekki var dramatíkin minni í framlengingunni. FH-ingar tóku frumkvæðið, eins og svo oft áður í leiknum, og leiddu með einu marki í hálfleik framlengingarinnar. Heimamenn náðu svo tveggja marka forskoti og leiddu með þeim mun þegar ein mínúta var eftir af seinni hálfleik. Valsmenn minnkuðu muninn niður í eitt mark þegar rétt rúm hálf mínúta var eftir og stálu svo boltanum af FH-ingum. Allan Norðberg rauk fram í hraðaupphlaup, jafnaði metin og skaut Valsmönnum í aðra framlengingu. Eins og við var að búast hélt dramatíkin áfram í seinni framlengingunni. Í þetta sinn voru það Valsmenn sem tóku forystuna og nánast í fyrsta skipti í leiknum voru FH-ingar farnir að elta. Í þetta sinn náðu Valsmenn tveggja marka forskoti, en FH-ingar snéru dæminu við og komust yfir seint í framlengingunni, 37-36. Þeir fengu svo tækifæri til að gulltryggja sigurinn á lokasekúndunum, en þá tók við algjörlega ótrúleg atburðarrás. FH-ingar töpuðu boltanum í sinni lokasókn og Björgvin Páll Gústavsson þrumaði boltanum fram. Þar var Daníel Montoro mættur fremstur manna, greip boltann í loftinu yfir vítateignum og setti hann í netið. Hann lenti hins vegar á Daníel Frey Andréssyni, markverði FH, og eftir skoðun í skjánum góða var niðurstaðan að markið stæði ekki og að Valsmenn fengju vítakast. Á vítalínuna fór Arnór Snær Óskarsson, sem var búinn að skora úr níu af ellefu vítum sínum í leiknum. Í þetta sinn reyndist Daníel hins vegar hetjan því hann varði vítið og tryggði FH dramatískan sigur, 37-36. Liðin munu því mætast í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn næstkomandi fimmtudag í N1-höllinni að Hlíðarenda. Olís-deild karla Valur FH