Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Valur-Fram

Valur er komið í 1-0 í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sex marka stórsigur á ÍBV í N1-höllinni, lokatölur 39-33. Gefur það þó alls ekki rétta mynd af þróun leiksins, en ellefu marka sveifla varð á leiknum í síðari hálfleik.

Algjört markaregn var í fyrri hálfleik þar sem skoruð voru 38 mörk. Bæði liðin fóru varla í sókn án þess að skora mark og munaði því aldrei nema einu marki á liðunum.

Hjá ÍBV fór Sandra Erlingsdóttir fyrir sínu liði og var í raun í sérflokki á vellinum. Skoraði hún níu mörk, gaf fjórar stoðsendingar og fiskaði þrjú víti allt í fyrri hálfleik. Markverðir beggja liða áttu í erfiðleikum, enda flest færin mjög góð í fyrri hálfleik og varnarleikurinn oft og tíðum slakur.

Undir lok fyrri hálfleiks komust Eyjakonur í þriggja marka forystu með góðum kafla þar sem þær voru í yfirtölu. Heimkonur í Val náðu þó að minnka þá forystu niður í tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks. Staðan í hálfleik 18-20 fyrir ÍBV.

ÍBV hóf síðari hálfleikinn af miklum krafti og eftir um fjórar mínútur í seinni hálfleik þá voru gestirnir komnir með fimm marka forystu, 19-25.

Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, tók þá leikhlé til þess að stöðva þann byr sem blés í segl ÍBV. Tókst það, því tíu mínútum seinna var allt orðið jafnt, 28-28, og hélst staðan jöfn næstu mínútur.

Eyjakonur fóru í kjölfarið afar illa að ráði sínu í flest öllum þáttum leiksins sem eftir lifði leiks. Tapaðir boltar, klaufalegar brottvísanir og léleg skot einkenndu leik liðsins. Valskonur gripu því gæsin og hlupu í burtu með sigurinn. Lokatölur 39-33. 

Atvik leiksins

Tveggja mínútna brottvísun Britney Cots í stöðunni 32-32 fór í raun með leikinn. Ýtti hún þá Örnu Karítas í gólfið þegar hún var löngu búin að missa hana fram hjá sér. Valskonur nýttu liðsmuninn afar vel og gengu frá leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Þrátt fyrir gagnrýni frá þjálfara sínum eftir leik þá var Sandra Erlingsdóttir hrikalega öflug í leiknum og skoraði hún 14 mörk, gaf sex stoðsendingar og fiskaði fimm víti.

Hjá Val var bæði Lovísa Thompson og Elísa Elíasdóttir með ellefu mörk, Lovísa var auk þess með fimm stoðsendingar.

Birna Berg fékk einnig gagnrýni frá sínum þjálfara líkt og Sandra. Sú gagnrýni finnst mér eiga mun meiri rétt á sér, en skotnýting hennar og sóknartilburðir voru ekki eins og búast má við frá reynslumesta leikmanni liðsins og jafnframt einum besta.

Dómarar

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson voru fínir í dag. Slepptu jafnvel nokkru sinnum atvikum þar sem hæglega hefði verið hægt að dæma víti eða brottvísanir. Höfðu þó engin úrslitaáhrif.

Stemning og umgjörð

Ágæt mæting á þennan leik. Þeir sem mættu létu vel í sér heyra og þá sérstaklega Vals megin í stúkunni. Umgjörðin mjög flott hér að Hlíðarenda, enda stór dagur. Seinna í kvöld mun leikur Vals og KR fara hér fram í Bestu deild karla.

Anton Rúnarsson: „Óvanalegt að sjá þetta á þessum kafla“

Valur - Fram Olís deild kvenna Vor 2026Pawel Cieslikiewicz

„Þetta gefur ekki alveg rétta mynd af leiknum,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, eftir sex marka sigur liðs hans á ÍBV.

„Við vorum undir í hálfleik og fimm mörkum undir í seinni hálfleik, en þvílíkur karakter að snúa þessu við. Mikið hrós á stelpurnar.“

En hvað vantaði upp á þegar ÍBV náði undirtökunum í leiknum og myndaði sér fimm marka forystu?

„Við vorum bara ekki nógu fastar fyrir í vörninni og líka óskynsamar í sókninni. Við misstum svolítið mikið á þessum kafla, vörn, markvörslu og sókninni líka og að hlaupa til baka. Þá allt í einu komust þær í fimm marka forystu, en við náðum að snúa þessu við og gerðum það hrikalega vel.

Við náttúrulega vitum að leikurinn er 60 mínútur og við höldum bara áfram okkar leik og þetta var óvanalegt að sjá þetta á þessum kafla. Sem betur fer þá náðum við að stytta hann og snúa þessu við, það var mjög sterkt.“

Anton segir sigurinn mjög mikilvægan farandi á erfiðan útivöll á þriðjudaginn.

„Þetta er mjög mikilvægur sigur og við erum að fara á erfiðan útivöll á þriðjudaginn og við erum að fara í ferðalag og allskonar og við þurfum bara að byrja að undirbúa okkur og vera klárar í slaginn þá.“

Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa verið í brennidepli upp á síðkastið. Aðspurður hvernig ferðalagi Vals yrði háttað fyrir næsta leik þá hafði Rúnar þetta að segja.

„Ég held að við séum að fara á mánudag og koma heim aftur á miðvikudag. Það er allavegana staðan eins og hún er núna og við erum bara að fókusera á okkur svo kemur bara í ljós hvernig þetta verður nákvæmlega.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira