Um­fjöllun: Valur 85-79 Grinda­vík | Ein­vígið fer í odda­leik

Kári Mímisson skrifar
684149095_10245226865351292_2710706807458555936_n
vísir/Guðmundur

Það var heldur betur spenna þegar Valur og Grindavík mættust í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla nú í kvöld. Fyrir leikinn var það ljóst að Valur þyrfti nauðsynlega á sigri að halda til að knýja fram oddaleik á meðan sigur Grindavíkur myndi tryggja liðinu sæti í úrslitaleiknum. Svo fór að lokum að Valur sigraði með sex stigum eftir ótrúlegan leik og tryggði í leiðinni oddaleik á miðvikudaginn.

Leikurinn fór vel af stað hér á Hlíðarenda en það voru Grindvíkingar sem skoruðu fyrstu körfu leiksins en það gerði Jordan Sample. Jafnt var á milli liðana framan af en undir lok fyrsta leikhluta tókst Val að slíta sig aðeins frá eftir að Igor Maric setti tvær þriggja stiga körfur í röð. Grindvíkingar urðu fyrir áfalli á þessum tímapunkti í leiknum þegar Daniel Mortensen þurfti að fara meiddar af velli.

Igor Maric hélt uppteknum hætti í öðrum leikhluta en hann var kominn með 14 stig snemma í leikhlutanum, Jóhanni Þór, þjálfara Grindavíkur, til mikilla ama. Munurinn varð mestur 16 stig í öðrum leikhluta en varnarleikur Vals var virkilega góður framan af leiknum. Liðið einbeitti sér að því loka á leikstjórnanda Grindavíkur, Jeremy Pargo en gáfu í staðinn tíma og pláss fyrir aðra leikmenn. Gestirnir úr Grindavík tókst þó að klóra aðeins í bakkann. DeAndre Kane setti svo síðustu körfu fyrri hálfleiksins þegar þriggja stiga skot hans fór niður rétt áður en flautan gall. Staðan í hálfleik 47-39 fyrir Val.

Ólseigir Grindvíkingar gáfust þó alls ekki upp en liðið náði að halda sér vel inni í leiknum í þriðja leikhluta og snemma í þeim fjórða var staðan jöfn 69-69. Hart var barist undir lokin og þrátt fyrir tvær risa þriggja stiga körfur frá Kristófer Breka Gylfasyni þá tókst Val á ótrúlegan hátt að vinna leikinn með fimm fræknum stigum frá Callum Lawson á loka mínútu leiksins . Lokatölur 85-79 fyrir Val sem með sigrinum knýja fram oddaleik.

Atvik leiksins

Þau eru í rauninni tvö atvik sem tryggja Val þennan sigur í kvöld. Í stöðunni 80-79 skorar Valur ótrúlega körfu þegar Kári Jónsson reynir afar vafasama sendingu á Lawson undir körfunni. Jordan Sample tókst að krækja puttunum í boltann og virtist vera að stela honum en Lawson náði næst að krækja sínum puttum í boltann og þaðan fór hann á einhvern ótrúlegan hátt ofan í körfuna. Heppnisstimpill yfir þessu vissulega en maður skapar sína heppni líka stundum.

Í næstu sókn stendur vörn Grindavíkur keik og Lawson er þvingaður í vonlaust neyðarskot fyrir utan þriggja stiga línuna. Herra Grindavík, Ólafur Ólafsson gerir sig sekan um að fara aðeins í Lawson og réttilega villa og þrjú víti dæmd sem Lawson setti öll niður.

Stjörnur og skúrkar

Kristófer Acox fór fyrir sínum mönnum á báðum endum vallarins í kvöld. 10 stig og 14 fráköst er ekki amalegur dagur á skrifstofunni og þá er maður ekki að reikna inn allan þann usla sem hann skapar undir körfunni. Keyshawn Woods svaraði eftir lélegan þriðja leik enda var maðurinn með ælupest fyrir þann leik. Þá má alls ekki gleyma Igor Maric sem setti 19 stig í kvöld þar af fimm þriggja stiga körfum.

Skúrkurinn í dag verður að vera Ólafur Ólafsson fyrir þetta glórulausa brot sitt á lokamínútunni.

Dómarinn

Það voru eitt og eitt atvik sem ég skildi ekki í kvöld en það er eins og það er. Ég hugsa að allir séu nú sammála því að í atvikinu þegar Mortensen meiðist hafi hann átt að fá villu. Heilt yfir flottir í kvöld.

Stemning og umgjörð

Úrslitakeppnin er úrslitakeppni og það var vissulega góð mæting í kvöld en ég persónulega hefði viljað sjá fleiri. Vissulega var úrslitaeinvígið að hefjast í handboltanum líka í kvöld þar sem Valur er líka að berjast svo mögulega er þetta skiljanlegt. Umgjörðin á Hlíðarenda annars upp á tíu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira