Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 06:02 Hermann og Óskar leiða saman hesta sína á Hlíðarenda í kvöld. Vísir/Samsett Tveir risaslagir fara fram í Bestu deild karla í fótbolta í dag, lykilleikur í úrslitakeppni Bónus deildar kvenna, enski boltinn rúllar og Formúla 1 fer aftur af stað.
Besta deildin Tveir grannaslagir eru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í dag og eftirvæntingin mikil. Riðið verður á vaðið norðan heiða þar sem Þór og KA eigast við í efstu deild í fyrsta sinn í 22 ár. Leikur liðanna hefst klukkan 16:00 og er sýndur beint á Sýn Sport Ísland 2 frá klukkan 15:50. KR hefur farið frábærlega af stað í Bestu deildinni og sækir Val heim í kvöld.Vísir/Anton Brink Um kvöldið eigast svo við Reykjavíkurstórliðin Valur og KR. Aðeins þrjú stig skilja liðin að við topp Bestu deildarinnar og má búast við fullum velli og mikilli stemningu. Sá leikur hefst klukkan 19:15 og er sýndur beint á Sýn Sport Ísland frá klukkan 19:00. Bónus deild kvenna Spennandi einvígi Keflavíkur og Hauka heldur áfram í Blue-höllinni í Reykjanesbæ í kvöld. Haukar leiða einvígið 2-1 fyrir leik kvöldsins. Leikurinn hefst klukkan 19:15 en bein útsending hefst klukkan 18:45 á Sýn Sport Ísland 2. Leikur fjögur er í kvöld. Enski boltinn Enginn hádegisleikur er í ensku úrvalsdeildinni þennan laugardaginn en lokaumferð Championship-deildarinnar fer fram klukkan 11:30. Wrexham og Middlesbrough berjast um umspilssæti og að komast beint upp. Bein útsending frá leik þeirra hefst klukkan 11:25 á Sýn Sport Viaplay. Doc Zone Hjörvars Hafliðasonar er á sínum stað klukkan 13:40 á Sýn Sport og þar verður þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni fylgt eftir. Doc Zone er á sínum stað. Newcastle og Brighton eigast við frá klukkan 13:40 á Sýn Sport 3. Brentford mætir West Ham og sá leikur í beinni frá 13:40 á Sýn Sport 5. Þá eigast við Wolves og Sunderland frá klukkan 13:40 á Sýn Sport 6. Seinni partinn mætir Arsenal svo liði Fulham í einum af þeim fjórum úrslitaleikjum sem Skytturnar eiga eftir fyrir lok móts. Sá leikur er í beinni frá klukkan 16:20 á Sýn Sport. Formúla 1 Formúla 1 er loks snúin aftur eftir heljarinnar pásu sökum stríðsbrölts í Miðausturlöndum og keppnin fer fram í Miami í Flórída þessa helgina. Formúlan er komin aftur!Joe Portlock/Getty Images Sprettkeppni er á dagskrá klukkan 15:55 á Sýn Sport Viaplay. Tímataka fyrir keppni morgundagsins er í kjölsogið, klukkan 19:55 á Sýn Sport Viaplay. Meiri fótbolti, golf og íshokkí Bayern Munchen hefur þegar tryggt sér þýska meistaratitilinn og hægt er að sjá meistarana er þeir mæta Heidenheim í þýsku úrvalsdeildinni klukkan 13:25 á Sýn Sport Viaplay. Golfið er einnig á sínum stað. Turkish Airlines Open er í beinni frá klukkan 10:30 á Sýn Sport 4. Þá fer fram lokahringur Íslandsmóts innanhúss í golfi, eða Landsmót í golfhermi, frá klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland 3. Keppt er í Mexíkó á LPGA-mótaröðinni og bein útsending þaðan hefst klukkan 20:30 á Sýn Sport 4. Deginum er svo lokað með íshokkí í NHL-deildinni. Knights og Mammoth eigast við frá klukkan 22:05 á Sýn Sport Viaplay.
Dagskráin í dag Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjá meira