Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 15. október 2026 18:30 Keflavík tók á móti nýliðum Sindra í annarri umferð Bónus deild karla sem hófst í kvöld. Eftir fremur jafnan leik í fyrri hálfleik stungu Keflvíkingar af í þeim síðari og fóru með öruggan sextán stiga sigur 106-90. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og Keflavík tók snemma öll völd á vellinum. Keflvíkingar buðu Sindra velkomna í deild þeirra bestu og gaf þeim engann nýliða afslátt strax í upphafi. Keflavík náði mest fimmtán stiga forystu en flottur endasprettur í leikhlutanum frá Sindra skilaði þeim aðeins sjö stigum frá Keflavík 31-24 eftir fyrsta leikhluta. Sindri mætti með krafti í annan leikhluta og byrjaði að saxa á forskot Keflavíkur með góðum körfum og voru að valda heimamönnum allskyns vandræðum. Það var ekki alveg sami kraftur í liði Keflavíkur og í byrjun leiks og náði Sindri að jafna leikinn þegar langt var liðið inn í leikhlutann. Daníel Guðni þjálfari Keflavíkur tók þá leikhlé til þess að reyna stilla saman strengi hjá sínu liði. Gestirnir frá Hornafirði voru að valda heimamönnum miklum vandræðum en það voru heimamenn í Keflavík sem sluppu inn í hálfleikinn tveimur stigum yfir 56-54 eftir flautu þrist frá Jamir Chaplin. Keflavík mætti með krafti út í seinni hálfleikinn og greinilegt að þeir nýttu hálfleikinn vel til að stilla saman strengi. Þeir byrjuðu þriðja leikhluta á 10-0 kafla áður en Sindri náði að koma sér á blað. Heimamenn gáfu fá færi á sér og sýndu á köflum frábæran varnarleik bland við öflugan sóknarleik og héldu Sindra í 14 stigum í leikhlutanum. Keflavík fór með leiðandi forystu inn í fjórða leikhlutann 82-68. Keflavík skoraði fyrstu sjö stig fjórða leikhlutans og það varð snemma ljóst í hvað stefndi í kvöld. Það var ekkert að fara koma í veg fyrir sigur heimamanna. Það var ekki lengur spurning hvort Keflavík myndi sigra heldur með hvað miklum mun sigurinn yrði. Niðurstaðan var sextán stiga sigur 106-90. Atvik leiksins Mér fannst stórkostlegt móment þegar Bragi Guðmunds blokkaði þriggja stiga skot Erlends Björgvinssonar og fékk svo langa sendingu þvert yfir völlinn og tróð. Það atvik fær mitt atkvæði í kvöld. Stjörnur og skúrkar Bragi Guðmundsson átti öflugan leik fyrir Keflavík. Hann endaði með 24 stig, tók 10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.Jamir Chaplin var stigahæstur í liði Keflavíkur með 26 og þá átti Hilmar Pétursson einnig góðan leik. Hjá Sindra fór allt í gegnum Kaleb Higgins. Hann endaði með 20 stig, 9 stoðsendingar og 8 fráköst. DómararnirBjarni Hlíðkvist, Birgir Örn og Stefán K sáu um flautuna í Blue höllinni í kvöld.Mér fannst dómararnir komast virkilega vel frá sínu í kvöld. Vel dæmdur leikur í Blue höllinni að mínu viti.Stemning og umgjörðKörfuboltabærinn stendur undir nafni. Það er allt upp á 10,5 í Blue höllinni. Þó það sé kalt úti þá stoppar það ekki að kveikt sé í grillinu og boðið upp á alvöru börger.ViðtölDaníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavikur.Anton Brink/Vísir„KKÍ má kannski aðeins fara heyra í þeim og reyna að kippa þessu eitthvað aðeins í liðinn“„Við komum alveg mjög ákveðnir út í leikinn og stóðum okkur vel, vorum komnir einhverjum fimmtán stigum yfir í fyrsta leikhluta“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld.„Síðan sýndum við bara vott af kæruleysi og Sindri er með flotta leikmenn innan sinna raða og við áttum erfitt með að eiga við Bandaríkjamanninn þeirra eins og flest lið munu sennilega gera í vetur“„Í þriðja leikhluta, rétt eins og í síðustu umferð þá stigum við svolítið á bensíngjöfina bæði varnarlega og sóknarlega. Við náðum að búa til forskot sem við náðum að halda til enda“Jordan Williams var á varamannabekk Keflavíkur í kvöld en hann er enn að bíða eftir leikheimild.„Hann hefði verið til í kvöld ef útlendingastofnun hefði kannski verið að sinna sínum málum. Ég held við höfum lagt inn einhverja umsóknm hérna 29. september og þetta gengur á sniglahraða“„Ég held að KKÍ má kannski aðeins fara heyra í þeim og reyna að kippa þessu eitthvað aðeins í liðinn því að þetta er alveg galið“„Hann var hérna hjá okkur í fyrra og var flottur en meiddist. Hann er búin að æfa með okkur núna í einhverja viku, tíu daga og hefur bara komið mjög vel út og hann myndi hjálpa okkur gríðarlega mikið ef hann fær einhvertíman leikheimild“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.Nebojsa Knezevic þjálfari SindraAðsend„Gegn liði eins og Keflavík þá færðu ekki tvö tækifæri“„Mér fannst við eiga góð og slæm augnablik í þessum leik“ sagði Nebojsa Knezevic þjálfari Sindra eftir tapið í kvöld.„Við byrjum illa báða hálfleikana. Í eitt skiptið náðum við að berjast aftur inn í leikinn en gegn liði eins og Keflavík þá færðu ekki tvö tækifæri á að gera það sama“„Við vorum ekki tilbúnir að berjast frá byrjun og þá sérstaklega varnarlega“Sindri spilaði flottan fyrri hálfleik í kvöld en áttu aldrei séns í þeim síðari.„Við byrjuðum illa báða hálfleikana og þá sérstaklega varnarlega. Við leyfðum 31 stig í fyrsta leikhluta og það er erfitt að vinna leiki þannig ef vörnin er ekki að spila betur en það“„Við spiluðum betur í öðrum leikhluta en eftir það þá byrjum við aftur illa og eftir það var mjög erfitt að koma til baka eftir það“Það er þó ýmislegt jákvætt sem Sindri getur tekið úr þessum leik.„Það jákvæða er að við sýndum góð viðbrögð í öðrum leikhluta, í fyrsta leiknum þá áttum við átta mínútur þar sem við spiluðum af krafti og við mættum og börðumst lengur í kvöld en við verðum að sýna meiri stöðugleika. Þetta er of mikið af upp og niður og við erum með okkar vandamál en mér finnst við vera með lið sem er með karakter og eru að fóta sig“„Það eru sumir leikmenn sem eru að koma til baka eftir meiðsli og það er ekki auðvelt en við erum að finna leiðir til þess að snúa þessu við og við eigum bara eftir að verða betri“ sagði Nebojsa Knezevic. Körfubolti Bónus-deild karla Sindri