Tinda­stóll - Ár­mann 109-86 | Á­fram sigur­ganga þrátt fyrir á­fall

Arnar Skúli Atlason skrifar
Tindastóll heldur áfram að vinna alla leiki.
Tindastóll heldur áfram að vinna alla leiki. Vilhelm/Vísir

Tindastóll vann Ármann 109-86 í annarri umferð Bónus deildarinnar í körfubolta í kvöld en leikið var í Síkinu á Sauðárkróki.

Tindastóll var án Adomas Drungilas og Péturs Rúnars vegna meiðsla. Óttast er að Drungilas verði lengi frá keppni eftir að hælbein hans tvíbrotnaði í leik gegn Njarðvík fyrir viku.

Tindastóll byrjaði betur í kvöld og Ade Murkey virkaði vel tengdur og var að skora að vild og Dee Bost var að finna hann galopinn trekk í trekk. Hjá Ármanni var Kinyon Hodges atkvæðamikill. Tindastóll jók forystuna hægt og rólega allan fyrri hálfleikinn og þegar leið á hálfleikinn vöknuðu Arnar Björnsson og Ragnar Ágústsson. Tindastóll leiddi eftir fyrri hálfleikinn 54-37.

Ármann byrjaði betur í seinni hálfleiknum og minnkaði muninn hægt og rólega. Adam Johannsson vaknaði og skoraði 14 stig í þriðja leikhlutanum eftir að hafa verið stigalaus í fyrri hálfleik. Ármann kom þessu niður í 11 stig þegar 2 mínútur lifðu 3. leikhluta en nær komust þeir ekki og Tindastóll gekk á lagið og stakk af. Fjórði leikhlutinn leið án þess að verða spennandi og öruggur sigur Tindastóls varð staðreynd eins og áður sagði 109-86.

Tindastóll byrjar tímabilið á tveimur sigrum og á svo Sindra frá Höfn í næsta leik á útivelli. Ármann hefur tapað báðum leikjunum sínum frekar stórt en þeir eiga KR á útivelli í næsta leik.

Atvik leiksins

Spretturinn hjá Tindastól í lok þriðja leikhluta sem var leiddur áfram af Dee Bost og það fór með leikinn.

Stjörnur

Hjá Tindastóli var Arnar Björnsson atkvæðamestur með 21 stig, Ade Murkey með 18 stig og 7 fráköst, Dee Bost 18 stig og 8 stoðsendingar og Ragnar 18 stig og 8 fráköst.

Hjá Ármanni var Kinyon Hodges með 26 stig og 7 fráköst og Adam Johannsson var með 17 stig og öll í seinni hálfleik.

Dómararnir

Flottir í kvöld enda ekki erfiður leikur að dæma.

Stemningin og umgjörð

Það voru nokkuð margir sem létu sjá sig í Síkinu í kvöld en stemmningin hefur oft verið betri.

Arnar: Ekki komið á hreint hvernig brugðist verður við meiðslum Drungilas

Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls var ánægður með sigurinn í kvöld og helst til ánægður með að spila á heimavelli.

„Gaman að spila heimaleik. Langt síðan við spiluðum hérna seinast. Það er rúmur mánuður síðan við spiluðum hérna seinast og höfum spilað marga leiki síðan og gaman að fá að spila fyrir fólkið okkar.“

Tindastóll hefur unnið tvo fyrstu leikina og er Arnar sáttur með þá byrjun.

„Gott að vinna en við þurfum að gera betur samt.“

Adomas Drungilas er meiddur og langt verður í hann en Tindastóll er ekki klár í hvort þeir sækja leikmann eða ekki í hans stað.

„Bara ekki komið á hreint (hvort þeir sæki mann).“

Steinar Kaldal: Galið hvernig við komum úr þessu leikhléi

„Sanngjarn sigur hjá Stólunum. Boltinn flæddi vel hjá þeim og þeir voru agressive í vörn og bara góðir,“ sagði Steinar Kaldal þjálfari Ármanns.

Ármann lenti undir strax í byrjun en kom með áhlaup í 3. leikhluta sem Tindastóll slökkti svo í.

„Við erum með 16% þriggja stiga í fyrri hálfleik og erum alveg inn í leiknum enn þá. Við tökum þetta „run“ þarna og þeir taka leikhlé og ég skil ekki hvað. Held við setjumst bara niður á Video-fundi og horfum á hvernig við komum út úr þessu leikhléi. Gjörsamlega galið hvernig við komum úr þessu leikhléi. Fórum að standa fyrir utan og skjóta þristum í staðinn fyrir að halda okkur í flæðinu sem kom okkur inn í leikinn á þeim tíma. Hrikalega slappt af okkur þar og missa þá svona langt frá okkur en Stólarnir eru hrikalega gott lið og þeir refsuðu bara um leið.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira