„Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 09:01 Vandræðalegasta augnablik Hildar Björnsdóttur átti sér stað á Hrafnistu fyrir mörgum árum. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð.
Hildur rifjaði þetta upp í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnarkosninga mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum á léttari nótum. Þangað mætti hún ásamt Björg Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar. Gekk beint til verks Í þættinum voru frambjóðendurnir þær Hildur og Björg beðnar um að rifja upp vandræðaleg augnablik í vinnunni. Hildur vann eitt sumar á Hrafnistu þegar hún var í menntaskóla. „Og eitt skiptið þegar ég var á vakt var ég send í mjög sérstakt verkefni. Þá voru kona og maður á Hrafnistu sem höfðu fellt hugi saman, nema hvað að konan var nýkomin úr mjaðmaskiptum og það spurðist til þeirra í miklu fjöri inni í svefnherbergi, sem er bara yndislegt, nema að ég var send til að stöðva þau, af því hún mátti ekkert vera í svona fjöri nýkomin úr mjaðmaskiptum.“ Hildur segist enn þann dag í dag ekki vita hvort kollegar hennar hafi einfaldlega verið að stríða henni. „En ég bara tók þetta verkefni og ég kláraði það. Ég stöðvaði þessar samfarir.“ Var það bara bank á hurðina? „Já. Heyrðu vina, þú ert nýkomin úr mjaðmaskiptum. Þetta verður að bíða.“ Alla þætti í þessari seríu Af vængjum fram má horfa á á myndbandsvef Vísis og á Sýn+. Þættirnir eru sýndir í línulegri dagskrá á Sýn á sunnudagskvöldum klukkan 18:55.
Af vængjum fram Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Tengdar fréttir Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Björg Magnúsdóttir segir að eitt mesta djammviskubit sem hún hafi upplifað hafi hún fengið eftir að hafa fyrir ótrúlega slysni ælt á trefil vinkonu sinnar á djamminu. 29. apríl 2026 14:00 „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52 Mest lesið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Sjá meira
Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01
Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Björg Magnúsdóttir segir að eitt mesta djammviskubit sem hún hafi upplifað hafi hún fengið eftir að hafa fyrir ótrúlega slysni ælt á trefil vinkonu sinnar á djamminu. 29. apríl 2026 14:00
„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52