Trump segir komið að Írönum að hringja Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. apríl 2026 11:26 Kona á göngu við háskóla í miðborg Teheran, þar sem þúsundir eru sagðir hafa fallið í átökum síðustu mánuði. AP Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana.
Í færslu á eigin samfélagsmiðli gaf Trump í skyn að boltinn væri nú hjá Írönum. „Ef þá langar að ræða við okkur þurfa þeir bara að hringja!!!“ skrifaði hann á Truth Social. Þá sagði hann að tíma Steve Witkoff, sérstaks erindreka Bandaríkjanna, og Jared Kushner, tengdasonar hans, yrði betur varið færu þeir ekki alla leið til Islamabad líkt og fyrirhugað var. Tvennum sögum fór þó af því hvort viðræðurnar væru á dagskrá eða ekki. Þrátt fyrir að Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran hafi verið staddur í Íslamabad i gær sögðu írönsk stjórnvöld enga fundi með Bandaríkjamönnum á dagskrá. Samkvæmt heimildum fréttastofu AP yfirgaf Araghchi Pakistan í gærkvöldi eftir fundi með pakistönskum sáttasemjurum. Í færslu á X sagði hann fundinn hafa borið ávöxt. Very fruitful visit to Pakistan, whose good offices and brotherly efforts to bring back peace to our region we very much value.Shared Iran's position concerning workable framework to permanently end the war on Iran. Have yet to see if the U.S. is truly serious about diplomacy.— Seyed Abbas Araghchi (@araghchi) April 25, 2026 Þegar tilkynnt var um hinn fyrirhugaða fund á föstudag sagði Trump JD Vance í biðstöðu vegna viðræðna í Pakistan. Ef þær bæru árangur færi hann umsvifalaust áleiðis til að vera viðstaddur. Íranir hafa sakað Bandaríkjamenn um brot á yfirstandandi vopnahléi með árásum á flutningaskip tengd Íran og herkví Bandaríkjahers um ríkið. Á meðan halda Íranir Hormússundi enn lokuðu, með tilheyrandi áhrifum á heimsmarkaðsverð á olíu og þar með alþjóðahagkerfið.
Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira