Upp­gjörið: Grinda­vík - Njarð­vík 2-1 | Deildarmeistararnir taka for­ystuna í ein­víginu

Siggeir Ævarsson skrifar
Jeremy Pargo var frábær í kvöld
Jeremy Pargo var frábær í kvöld Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Grindavík er komið með 2-1 forystu í einvíginu gegn Njarðvík eftir 97-85 sigur í þriðja leik liðanna. Leikurinn var hnífjafn alveg fram að fjórða leikhlutanum.

Leikurinn var í járnum til að byrja með þar sem Luwane Pipkins skoraði nánast að vild fyrir Njarðvíkinga en undir lok fyrsta leikhluta settu Grindvíkingar Kristófer Breka inn á sem límdi sig á hann og Grindavík lokaði leikhlutanum með góðu áhlaupi og leiddu 32-19.

Njarðvíkingar hófu þá 2. leikhluta á 10-2 áhlaupi meðan að Grindvíkingum gekk illa að skora. Pipkins hélt áfram að salla niður stigum en hann endaði með 30 stig í fyrri hálfleik og klikkaði aðeins úr tveimur skotum. Á sama tíma var þó enginn annar leikmaður Njarðvíkur kominn með meira en fimm stig.

Grindvíkingar enduðu hálfleikinn á flautuþristi frá Jeremy Pargo og staðan 52-48 í hálfleik. Það komu upp nokkur áhugaverð atvik í fyrri hálfleik þar sem menn virtust ætla að missa hausinn og/eða það syði upp úr en allir héldu ró sinni þrátt fyrir hátt spennustig.

Þriðji leikhluti var svo algjörlega í járnum. Bæði lið áttu sína spretti en hvorugu tókst að slíta sig frá og staðan 69-68 fyrir lokaátökin. Lítið skorað í leikhlutanum og Pipkins bætti bara við fimm stigum eftir þessa ótrúlegu frammistöðu í fyrri hálfleik.

Heimamenn mættu mjög einbeittir inn í lokaleikhlutann. Vörnin small og baráttan á báðum endum vallarins til fyrirmyndar. Ragnar Örn Bragason smellti í tvo þrista í röð og kom Grindavík í 77-70. Þeir héldu fætinum á bensíngjöfinni allt til loka þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi gert hetjulega tilraun til að spilla gleðinni undir lokin.

Lokatölur í Grindavík 97-85 og staðan í einvíginu er orðin 2-1, Grindavík í vil.

Atvik leiksins

Þristarnir tveir sem Raggi setti í upphafi fjórða leikhluta virðast hafa verið ákveðinn vendipunktur í leiknum. Leikurinn fer úr því að vera í algjöru jafnvægi í að Grindavík kemst sjö stigum yfir og svo þrettán skömmu síðar.

Stjörnur og skúrkar

Eftir nokkrar skrítnar ákvarðanir í röð og tapaða bolta tók Jeremy Pargo leikinn nánast yfir undir lokin. Hann endaði með 31 stig og níu stoðsendingar. DeAndre Kane kom næstur með 21 stig og setti nokkra stóra þrista þegar það skipti máli.

Luwane Pipkins var algjörlega óstöðvandi í fyrri hálfleik með 30 stig en það dró heldur af honum eftir því sem á leið. 37 stig frá honum alls. 

Grindvíkingum gekk vel að hemja Dominykas Milka í kvöld sem endaði með sjö stig.

Dómarar

Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist og Jakob Árni Ísleifsson voru á flautunni í kvöld. Heilt yfir fín frammistaða hjá þeim og ágætis jafnvægi á leiknum en ein og ein ákvörðun inn á milli sem má setja spurningamerki við. Ekkert samt til að missa svefn yfir held ég.

Stemming og umgjörð

Frábær stemming í Grindavík í kvöld. Fan zone-ið opnaði snemma, stúkan troðfull Grindavíkurmegin og þétt setin Njarðvíkurmegin. Báðar stuðningsmannasveitir í góðu stuði og allt bara til fyrirmyndar í HS Orku höllinni í kvöld.

Viðtöl

Jóhann Þór: „Mér finnst sóknarleikurinn okkar mega vera betur smurður“

Jóhann leitar að koppafeitinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með seinni hálfleikinn í kvöld en vill stilla sóknarleik sinna manna betur af.

„Seinni hálfleikur í rauninni bara í heild sinni. Við fundum betri takt varnarlega. Mér finnst sóknarleikurinn okkar mega vera betur smurður á löngum köflum. En það er bara eins og það er. Við vorum mjög góðir í 10-12 mínútur og sigldum þessu bara örugglega heim.“

Jordan Semple spilaði aðeins 27 mínútur rúmar í kvöld og sat á bekknum nánast allan þriðja leikhluta. Jóhann vildi ekki meina að þarna hefði verið einhver stórumannaskák í gangi þar sem Milka sat einnig á bekknum. Semple hefði einfaldlega ekki verið að spila nógu vel.

„Nei, hann var bara úr takti og bara lélegur. Þess vegna settist hann á bekkinn. Það var ekkert flóknara en það. Vorum staðir sóknarlega af því að hann er ekki að rúlla á hringinn. Honum finnst þetta óþægilegt þegar Milka situr svona. Við höfum reynt allskonar og fjandinn hafi það, í leik fjögur við hljótum að ná þessu þá.“

Ragnar Örn Bragason mætti til leiks með nýjan hárlit og skartaði æpandi bláum kolli í kvöld. Var það blái liturinn sem gerði útslagið að þessu inni?

„Já, eigum við ekki bara að segja það? Raggi stóð sig mjög vel og kom sterkur inn. Breki var góður í fyrri hálfleik. Við þurftum að reyna að finna einhvern takt af bekknum og Raggi kom bara geggjaður inn. Setti tvö góð skot og spilaði góða vörn.“

Rúnar Ingi: „Þurfum bara að finna nýja leið til að taka eitthvað í burtu frá þeim“

Rúnar fer yfir málin með sínum mönnumVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Njarðvíkingar brenndu alls af þrettán vítum í kvöld. Aðspurður sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, að það sæti auðvitað í honum strax eftir leik en hann vildi þó ekki gera of mikið úr slakri vítanýtingu sinna manna.

„Já, auðvitað. Auðvitað telur það í stóru myndinni. En að því sögðu þá er það kannski ekki neitt sem skipti öllu máli. Leikurinn var í jafnvægi og ég tek þetta svolítið á mig. Ég set Dom kannski aðeins of snemma inn á og ekki kannski með „line-up-ið“ sem hentaði okkar.“

„Pargo refsaði okkur með því að finna Ragga Braga tvisvar og Raggi var nægilega stór til að setja þessi tvö skot. Það bjó til þessa holu inn í fjórða leikhluta og þá förum við að elta og þá er orkan kannski ekki alveg með okkur í liði þá.“

Talandi um orku þá virtist Luwane Pipkins einmitt vera orðinn nokkuð orkulítill í seinni hálfleik eftir að hafa skorað 30 í þeim fyrri.

„Já, og var meira að segja meiddur. Það svona dró aðeins af honum og löppin kannski aðeins ekki með honum í liði. Og auðvitað fóru Grindvíkingar að dekka hann aðeins öðruvísi og loka ákveðnum svæðum fyrir hann. Við vorum alveg að ná að opna þá á köflum en kannski ekki nægilega skilvirkt í gegnum 40 mínútur. Við töpum of mörgum einn á einn baráttum.“

„Svo bara klárar Pargo þetta einn á einn. Ég þarf að grafa eitthvað og finna einhverjar nýjar leiðir til að gera honum erfiðara fyrir og ekki kannski leyfa honum að standa í þessu einn á einn því hann vann leikinn fyrir þá í kvöld.“

Þrátt fyrir að Jóhann Þór hafi ekki verið í neinni miðherjaskák var Rúnar það upp að einhverju marki.

„Já, og bara stundum virkar það og stundum ekki, og þarna var hann búinn að sitja fullt í þriðja. Og þá er ég kannski farinn að horfa í fyrir leik fjögur hvernig ég get róterað betur. Mér fannst við vera smá gaslitlir hérna. Of mörg þreytumistök, vítanýting og allskonar. Ég var að setja Dom inn á til að reyna eitthvað að hvíla en þurfti svo að taka hann strax út af aftur þar sem Raggi refsaði okkur.“

„Ef Raggi hefði klikkað úr þessum tveimur skotum hefði þetta verið frábært og geggjuð ákvörðun. Svona er þetta bara. Vel gert hjá honum að setja þessi skot og við þurfum bara að finna nýja leið til að taka eitthvað í burtu frá þeim. Þú þarft yfirleitt að gefa eitthvað og við þurfum bara að velja rétt.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira