Uppgjörið: KR - Stjarnan 91-82 | KR stóðst spennuna og allt jafnt Árni Jóhannsson skrifar 6. apríl 2026 22:05 KR-ingar eru búnir að jafna metin í þessu spennandi einvígi. vísir/Diego KR-ingar jöfnuðu einvígið við Stjörnuna í 1-1 í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Liðin mætast að nýju í Garðabæ á föstudaginn en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslitin. Lokatölur í Vesturbænum í kvöld urðu 91-82 en spennan var þó afar mikil nánast til loka. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Rafmagnin sló út rétt fyrir leik.Vísir / Diego Spennan var það mikil í byrjun að rafmagnið fór af salnum þegar flautan var við það að hringja til að gefa til kynna að leikurinn ætti að fara að byrja. Ástæðan fyrir því var að eldingu sló niður dreifikerfið rafmagns sem olli trufluninni á rafmagninu. Leikmenn fengu því auka 10 mínútur eða svo til að hita upp fyrir leikinn. KR komst yfir og hélt Stjörnunni fyrir aftan sig allan tímann. KR byrjaði leikinn heilt yfir betur, spilaði góða vörn og fékk nóg af körfum til að mynda níu stiga forskot þegar um þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Stjarnan tók örlítið við sér þegar Pablo Bertone og Bjarni Guðmann komu inn á en KR náði að halda gestunum í skefjum og voru með sex stig forskot þegar fyrsti leikhlutinn kláraðist. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Friðrik Anton átti mjög góða innkomu.Vísir / Diego Annar leikhlutinn var svo mjög hraður og skipst á körfum á löngum köflum en heimamenn komust fyrr í takt varnarlega og náðu að koma í veg fyrir að gestirnir kæmust á sprett. Friðrik Anton Jónsson steig vel upp og skoraði sjö stig í leikhlutanum og hélt heimamönnum gangandi þegar fór að kólna sóknarmegin hjá KR. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Pablo Berton svífandi.Vísir / Diego Luka Gasic og Hilmar Smári gerðu þá vel í að setja niður stóra þrista til að halda KR í seilingarfjarlægð. Stjörnumenn voru búnir að ná að minnka muninn niður í fjögur stig þegar lítið var eftir af leikhlutanum en KR náði vopnum sínum í blálokin og þegar Þórir Guðmundur Þorbjarnarson negldi niður flautuþrist þá var forskotið komið aftur í níu stig þegar gengið var til búningsherbergja. Liðin skiptust á að skora í upphafi þriðja leikhluta en eftir um tvær mínútur þá náði KR að toga sig frá Stjörnunni. Aftur var varnarleikurinn góður og skotin fóru ofan í og sjálfstraust KR-inga í sókn var mikið. Komust þeir meðst 14 stigum yfir og hafði maður á tilfinningunni að Vesturbæingar væru að fara að sigla leiknum heim. Annað kom á daginn. Upp steig Luca Gasic. Hann skoraði sjö stig í röð en Stjörnumenn náðu ekki að grípa það tækifæri. Það hinsvegar gaf þeim þannig byr undir vængina að þeir lögðu ekki árar í bát.. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Giannis að komast að körfunni.Vísir / Diego Liðin kólnðu á sóknarhelmingnum og KR hélt því forystunni. Staðan var 70-59 eftir að Friðrik Anton boraði niður þrist. Þá var tekið leikhlé og Stjarnan sprakk út. Pablo Bertone og Ægir Þór réðust á KR-ingana af mikilli hörku og áður en við var litið þá var Stjarnan búin að jafna metin í 70-70 og lokamínúta þriðja leikhluta var farin af stað. Linards Jauntsems náði þá loksins að skora af vítalínunni og kom í veg fyrir að Stjarnan komst yfir og Þórir bætti við tveimur stigum og KR hélt forskotinu yfir leikhlutaskiptin, 73-70. Seth LeDay getur varið hringinn þegar hann nær að beita sér.Vísir / Diego KR byrjaði betur og komst í sjö stig forystu en Stjarnan var fljót að svara fyrir og minnkaði muninn í tvö stig. KR komst í fimm stiga forskot og Stjarnan jafnaði 80-80 en það virtist vera gesturnum úr Garðabæ lífsins ómögulegt að komast yfir en þeir fengu sannarlega tækifærin til þess. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Luka Gasic gerði vel í að koma sínum mönnum inn í leikinn aftur.Vísir / Diego Mikill hamagangur var í öskjunni og skoruðu liðin sitthvora körfuna og staðan var 82-82. Þá hættu Stjörnumenn að ná í körfur. Þeim gekk vel að koma í veg fyrir að KR skoraði af krafti en þar sem engar körfur komu á móti þá náðu þeir ekki að komast yfir hólinn. KR náði að gera þá vel að stoppa Stjörnuna af og með flautuþrist frá Toms þá lauk leiknum með níu stiga sigri 91-82 fyrir heimamenn. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Ægir að lofta boltanum yfir KR vörnina.Vísir / Diego KR er þar með búið að jafna metin í einvíginu og við fáum í það minnsta fjóra leiki í þessu einvígi. Næsti leikur á föstudaginn í Garðabænum. Atvik leiksins Í stöðunni 85-82 stal Tóti Túrbó boltanum og Þorvaldur Orri Árnason tvö stig úr hraðaupphlaupi en það voru hans einu stig. Þá var ekki búið að skora stig í dágóðan tíma og kláraði þetta nánast leikinn fyrir KR. Stjörnur og skúrkar Linards Junzems skoraði 31 stig fyrir KR og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum og 13 stoðsendingum. Fengu KR framlag frá mörgum í dag en Toms Elvis Leimanis átti ekki góðan skotleik en hann hitti úr einu skoti af 11 og það kom alveg í blálokin. Linards átti stórleik.Vísir / Diego Hjá Stjörnunni var Pablo Bertone stigahæstur með 19 stig en Hilmar Smári kom næstur með 16 stig. Seth LeDay gat ekki beitt sér almennilega en hann fékk sína fjórðu villu í lok fyrri hálfleiks og þurfti því að sitja mikið og gat kannski ekki beitt sér eins mikið og hann gerir. Hann skoraði fjögur stig en venjulega skorar hann um 18 stig í leik. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Hilmar Smári var í villuvandræðum í kvöld en skoraði mjög velVísir / Diego Umgjörð og stemmning KR kann náttúrlega að halda leik í úrslitakeppni og hafa engu gleymt þó að fjögur ár séu liðin frá því að þeir voru hér síðast. Fleiri en 1200 áhorfendur létu svo vel í sér heyra og úr varð frábær stemmning hjá báðum stuðningsmannasveitum. Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Jón Þór Eyþórsson höfðu í mörgu að snúast í kvöld í mjög erfiðum leik. Úr blaðamannastúkunni var ekki séð að hallaði á annað liðið en þegar tölfræðiblaðið er skoðað þá voru dæmdar 25 villur á Stjörnuna og 17 á KR. Heimamenn fengu úr þessum villum 29 vítaskot gegn átta vítaskotum Stjörnunnar og voru þjálfarar Stjörnumanna ekki par sáttir við þessa staðreynd. Þetta getur skipt miklu máli þegar á hólminn er komið. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Seth LeDay að sækja fjórðu villuna sína. Vísir / Diego Þá voru margir lykilmenn Stjörnunnar með fjórar villur í kvöld og það hafði áhrif á getu þeirra til að beita sér að fullu. KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Sigmundur, Bjarni og Jón Þór að ræða málin eins og oft í kvöld.Vísir / Diego Baldur var mjög ósáttur við störf dómaranna Baldur Þór telur sína menn og fleiri geta gert betur en í kvöld.Vísir / Diego Baldur Þór Ragnarsson gat ekki verið sáttur við spilamennsku sinna manna þegar liðið hans tapaði fyrir KR í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar karla. „Við hefðum þurft að skora meira í fjórða leikhluta og tapa færri boltum. Það er svona spilamennskan sem hefði mátt vera betri. Þá hefði þetta dottið okkar megin“, sagði Baldur þegar hann var spurður að því hvað hans menn hefðu getað gert betur í kvöld. Baldur var þá spurður að því hvort hann sæi eitthvað í fljótu bragði hjá sínum mönnum sem hann gæti lagað til að þessir hlutir væru í lagi. „Við þurfum bara að vera einbeittari. Þetta eru alvöru leikir og alvöru sería. Hvert augnablik skiptir máli.“ Baldur var spurður að því að hvað hann myndi segja við sína menn á milli leikja. „Við teljum okkur vera að gera ágætis hluti en við þurfum að gera betur í ákveðnum hlutum. Við höldum áfram að skerpa á því og finna lausnir á þeirra leik.“ Baldur vildi ekki meina að ljósleysið í upphafi leiks hafi haft einhver meiri áhrif á sína menn þó að KR hafi byrjað örlítið betur. Ljósleysið hafði áhrif á alla sem tóku þátt í leiknum. Þá ætlaði blaðamaður að ljúka viðtalinu en getur viðurkennt að hafa láðst að spyrja Baldur út í dómgæsluna þegar hann hefði átt að gera það. Baldur taldi þá upp tölfræðina sem komið var inn á að ofan og var mjög ósáttur en hann hefði viljað fá spurningu um störf dómara. Hann benti á misræmið í vítaskotum t.d. sem endaði 29 reynd víti hjá KR gegn átta vítum sem Stjarnan skaut í öllum leiknum. Jakob: Fullmannað KR lið er mjög erfitt að eiga við KR - Stjarnan Bónus deild karla vor 2026. Jakob Sigurðsson áttar sig ekki á einhverju en var sáttur.Vísir / Diego Þjálfari KR var mjög kátur með sigur sinna manna í kvöld. Jakob Sigurðsson taldi að KR hefði gert vel á mörgum sviðum í kvöld. „Við vorum mjög flottir í fyrri hálfleik og með góð tök á þessum leik. Svo eiginlega bara gerðist svipað og í leik eitt en við misstum þá ekki framúr okkur. Við stoppuðum þá á réttum tíma.“ Jakob var að vísa í að þriðji leikhlutinn þróaðist með svipuðum hætti í báðum leikjum þar sem Stjarnan komst á mikinn sprett. Hvað var öðruvísi frá síðasta leik? „Vondi kaflinn hjá okkur var styttri og við náðum aftur einbeitingu á það sem við vorum að gera vel í leiknum. Við héldum áfram í því og héldum áfram að ráðast á þá á þeim stöðum sem við vildum. Svo fráköstuðum við vel í lokin.“ Jakob var spurður að því hvort hann væri búinn að finna lykilinn að Stjörnunni. „Ég veit ekki hvort það sé einn lykill að Stjörnunni en við erum fullmannaðir og þegar það er svoleiðis þá er mjög erfitt að spila við okkur. Fullmannað KR lið er mjög erfitt að eiga við.“ Það er mikill þorsti í úrslitakeppnina hjá stuðningsmönnum KR. „Þú sérð það. Það var geggjuð stemmning hérna í húsinu í kvöld. Það á bara eftir að aukast eftir því sem líður á.“ Þjálfarinn hló við þegar hann var spurður að því hvort ljósleysið hafi haft einhver áhrif. „Nei ég er löngu búinn að gleyma því.“ Bónus-deild karla KR Stjarnan