„Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 13:02 Gísli Eyjólfsson leikur með Skagamönnum í sumar. vísir/lýður „Það er bara spá, en við stefnum auðvitað hátt og ég held hærra en þetta,“ segir Gísli Eyjólfsson, leikmaður ÍA, um að Skagamönnum sé spáð fimmta sæti í Bestu deild karla í fótbolta fyrir komandi sumar.
Gísli samdi við ÍA í vetur er hann kom heim úr atvinnumennsku frá Svíþjóð. Hann nýtur sín vel á Akranesi. Klippa: Gísli spenntur að byrja aftur í Bestu „Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Það hefur verið gaman að prófa undirbúningstímabil þarna í höllinni og að æfa snemma á daginn. Þetta er fagmannlegt umhverfi og gott utanumhald í þessu liði. Þetta hefur verið skemmtilegur tími,“ segir Gísli. Gísli var orðaður við uppeldisfélag sitt Breiðablik og fyrrverandi þjálfari liðsins, Halldór Árnason, greindi frá því á dögunum að Gísli hafi verið á leið í Kópavoginn þegar Halldór steig frá borði í haust. En hvað breyttist? „Ég og Dóri erum mjög góðir vinir eftir allan þennan tíma í Breiðabliki. Planið hjá mér var að losa mig undan samningi úti og koma mér heim og finna svo lið. Ég var búinn að vera í góðu sambandi við Dóra. Hann var með góðar pælingar í Breiðabliki sem mér leist vel á en það var ekki komið lengra en þetta. Það var aldrei samningur á boðrinu,“ segir Gísli. Skagamenn ætla sér stóra hluti í sumar og hafa styrkt sig umtalsvert. Auk Gísla hafa þeir Guðmundur Þórarinsson, Böðvar Böðvarsson og Markús Páll Ellertsson samið við liðið. „Þetta er auðvitað bara hörkulið. Ef þú rennir yfir hópinn eru alvöru leikmenn þarna innanborðs. Við höfum nýtt tímann til að slípa liðið saman og þetta er farið að líta vel út núna. Maður er að verða spenntur fyrir tímabilinu og fyrsta testinu við Fram og sjá hvernig við stöndum eftir veturinn,“ segir Gísli. Hvernig verður þetta sumar? „Verður þetta ekki bara geðveiki? Þetta verður bara stemning og sjálfur er ég ótrúlega spenntur að fá að spila aftur í Bestu deildinni.“ ÍA sækir Fram heim í fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni klukkan 19:30 á sunnudag. Leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Ísland. Fyrsta umferð Bestu deildarinnar á Sýn Sport Sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 19:30 Fram - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla ÍA Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira