„Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. apríl 2026 07:03 Halldór segir Gísla hafa verið á leið í Kópavoginn þegar hann hætti þar í haust. Samsett/ÍA/Vísir Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, segir Gísla Eyjólfsson hafa verið á leið til félagsins þegar hann yfirgaf Blika síðasta haust. Gísli endaði á því að semja við ÍA en Halldór segir það mistök hjá Blikum að hafa ekki samið við miðjumanninn.
Ljóst var í fyrra að Gísli væri á heimleið úr atvinnumennsku frá Svíþjóð og var hann fastlega orðaður við Breiðablik sem hann lék með lengi vel hér heima fyrir Svíaför hans. Hann samdi hins vegar við ÍA í vetur en kærasta Gísla er af Skaganum og þau búin að koma sér fyrir Akranesi. Halldór fór yfir komandi tímabil í Bestu deildinni ásamt þeim Elvari Geir Magnússyni og Tómasi Þór Þórðarsyni í útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardaginn var. Öll lið deildarinnar voru til umræðu, þar á meðal Breiðablik og ÍA. Talið barst að Gísla og nefndi Elvar Geir að fyrirliði Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson, hafi gagnrýnt ákvörðun Kópavogsliðsins að semja ekki við Gísla í vetur. Halldór segir þá gagnrýni fyrirliðans eiga rétt á sér. „Ég get alveg tekið undir það. Vikuna áður en ég hætti var Gísli bara á leiðinni í Breiðablik. Ég veit ekki hvaða U-beygja átti sér stað þar. Ég held að það hafi verið mistök, klárlega,“ segir Halldór en hann sagði upp störfum í október og Ólafur Ingi Skúlason tók við skútunni. „Gísli er eiginlega akkúrat það sem Breiðablik vantaði í fyrra. Kraftmikill leikmaður, ófyrirleitinn og á góðan hátt drulluerfiður. Hann er leikmaður sem Breiðablik vantaði, og vantar held ég ennþá, þannig að ég get tekið undir það,“ segir Halldór jafnframt. Þáttinn má heyra í heild í spilaranum. Umræðan um Gísla hefst eftir tæpar 17 mínútur. Besta deildin hefst á föstudaginn kemur er Breiðablik sækir Víking heim. ÍA sækir Fram heim á sunnudagskvöldið. Halldór verður sérfræðingur í Stúkunni á Sýn Sport í sumar en sérstakur upphitunarþáttur fyrir Bestu deildina verður á Sýn Sport annað kvöld.
Besta deild karla ÍA Breiðablik Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira