Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. apríl 2026 07:45 Frá fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, og Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í október 2025. epa Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því.
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, heimsótti Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið í gær þar sem þeir funduðu. Ekki hefur verið greint frá því hvað kom nákvæmlega til tals á fundinum en á blaðamannafundi Karoline Leavitt, talskonu Hvíta hússins, fyrir fundinn minnti hún á að Trump hefur áður gagnrýnt bandalagið töluvert. Aðspurð hvort fulltrúar Bandaríkjanna væru enn að skoða að ganga úr Atlantshafsbandalaginu sagði Leavitt að það væri eitthvað sem forsetinn hefði áður sagt. „Ég held að það sé eitthvað sem hann mun ræða um eftir tvær klukkustundir á fundi sínum með Rutte framkvæmdastjóra og kannski munið þið heyra beint frá forsetanum eftir fundinn síðdegis í dag,“ sagði hún. The White House has announced that Trump will discuss the issue of a U.S. withdrawal from NATO with Mark Rutte. pic.twitter.com/o6AjCc2vFu— WarTranslated (@wartranslated) April 8, 2026 Þá sagðist Leavitt vera með beina tilvísun í forsetann. „Þeir voru prófaðir og stóðust ekki prófið og ég myndi bæta því við að það er frekar sorglegt að NATO hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni síðustu sex vikurnar þegar það er bandaríska þjóðin sem hefur fjármagnað öryggismál og varnir þeirra,“ hafði Leavitt eftir Trump. Hreinskilinn og opinskár á fundinum Hugmyndir Trumps um að ganga úr Atlantshafsbandalaginu eru ekki nýjar af nálinni en hann viðraði þær á fyrsta kjörtímabili sínu sem forseti Bandaríkjanna. Hann hefur ítrekað þessar hugmyndir í kjölfar árásar Bandaríkjanna og Ísraela á Íran þar sem NATO ákvað að taka ekki þátt í átökunum. Trump var í kjölfarið afar harðorður þar sem Evrópuríki komu ekki til aðstoðar um leið og hann óskaði eftir aðstoð, á sama tíma og hann sagðist ekki þurfa á aðstoð að halda. Markmið Rutte með fundinum með Trump var að tala forsetann til og fá hann til að skilja að það væru hagsmunir Bandaríkjamanna að vera áfram í bandalaginu. Ekki hefur verið greint frá því hvað var rætt á fundi Rutte og Trump í gærkvöldi en sagði Rutte samkvæmt BBC að Trump hefði verið hreinskilinn og opinskár. Forsetinn ræddi ekki við fjölmiðla að fundi loknum en birti færslu á samfélagsmiðlinum sínum Truth Social. „NATO VAR EKKI TIL STAÐAR ÞEGAR VIÐ ÞURFTUM Á HJÁLP ÞEIRRA AÐ HALDA OG ÞEIR VERÐA EKKI TIL STAÐAR EF VIÐ ÞURFUM AFTUR Á ÞEIM AÐ HALDA,“ skrifaði forsetinn. „EKKI GLEYMA GRÆNLANDI, ÞESSU STÓRA, ILLA REKNA, ÍSSTYKKI.“
Bandaríkin NATO Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Íran Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira