Nike semur við Baldvin: „Get nú kallað áhugamálið mitt vinnuna mína“ Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 10:33 Baldvin Þór Magnússon hefur verið að ná eftirtektarverðum árangri í hlaupasenunni. Frammistaða hans vakti athygli hjá Nike sem hefur samið við kappann. Mynd: Nike Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon hefur skrifað undir samning við einn stærsta íþróttvöruframleiðanda í heimi, Nike. Samningurinn mun gera Baldvini kleift að gera sitt helsta áhugamál að sinni atvinnu án þess að þurfa hafa fjárhagsáhyggjur.
Baldvin er einn fremsti hlaupari okkar Íslendinga og hefur verið að ná frábærum árangri. Í upphafi árs braut hann blað í sögu tíu kílómetra götuhlaups með því að vera fyrsti Íslendingurinn til þess að hlaupa kílómetrana tíu á undir tuttugu og átta mínútum. Árangurinn tryggði Baldvini sæti á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í sumar og þá hefur gott gengi hans vakið athygli íþróttavöruframleiðandans Nike. Samningurinn við Nike mun gera mikið fyrir Baldvin sem segir frá því í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram að spennandi ár sé framundan. „Nokkur spennandi ár framundan þar sem ég held áfram að elta allt það sem ég veit að ég er fær um að elta og á sama tíma og ég get kallað áhugamálið mitt vinnuna mína með stuðningi frá Nike,“ skrifar Baldvin á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Baldvin Magnusson (@vinnym_99) Í samtal við Garp Ingason Elísabetarson í Ísland í dag í febrúar sagði Baldvin, sem er búsettur í Bretlandi, frá því að hann með nokkra styrktaraðila á bak við sig sem héldu honum gangandi en að staðan mætti vera betri, „Ég er mjög heppinn að ég bý með pabba og fæ aðgang þar úti að topphlaupurum í kringum mig og toppþjálfara. Maður er náttúrulega að elta drauminn sinn og að elta það að þetta verði betra fjárhagslega. Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma.“ Nú verður spennandi að sjá hvernig þróun Baldvins sem hlaupara verður nú þegar að hann þarf ekki að hafa fjárhagsáhyggjur og er með jafn stóran styrktaraðila á bak við sig og Nike.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Sjá meira