Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 84-86 | Allt jafnt eftir ótrúlega dramatík Siggeir Ævarsson skrifar 6. apríl 2026 20:46 Það voru mikil slagsmál í fyrsta leik liðanna en menn héldu sig á mottunni í kvöld þó að spennan væri ekki minni. vísir / guðmundur Njarðvíkingar tóku á móti Grindavík í kvöld í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla. Grindvíkingar fögnuðu dísætum sigri eftir mikla dramatík, 86-84, og jöfnuðu metin í einvíginu, 1-1. Það var mikill hiti inni á vellinum í fyrsta leik liðanna en í kvöld var fyrst og fremst hiti í húsinu enda Ice Mar höllin þéttsetin og góð stemming þar sem allir sýndu sínar bestu hliðar eftir létt hliðarspor í síðasta leik. Leikurinn fór hratt af stað og það var lítið um varnarleik. Njarðvíkingar virtust finna sig betur í þessu hraða leik og leiddu með fjórum stigum, 24-20, eftir fyrsta leikluta. Þeir hófu annan leikhluta svo af miklum krafti og voru fljótlega komnir tólf stigum yfir. Grindvíkingar reyndu að herða tökin í vörninni en í hvert sinn sem einhver þeirra sýndi smá ákafa endaði einhver leikmaður Njarðvíkinga með galopið skot. Njarðvíkingar virtust á þessum tímapunkti ætla að keyra burt með leikinn en þá rönkuðu Grindvíkingar við sér, skoruðu átta stig í röð án svars og Valur Orri setti síðustu körfu hálfleiksins sem var þristur úr horninu. Staðan 49-44 í hálfleik Njarðvík í vil. Heimamenn að spila ögn betur og gestirnir enn í brekku en leikurinn engu að síður galopinn. Það var allt annað að sjá til Grindvíkinga í seinni hálfleik. Þeir mættu gríðarlega einbeittir til leiks og hófu háfleikinn á 10-2 áhlaupi og voru allt í einu komnir yfir, 51-54. Þá tók Rúnar leikhlé og náði aðeins að trufla flæðið í leik gestanna. Dwayne Lautier bauð svo upp á eins manns sýningu undir lok þriðja leikhluta en hann skoraði tíu stig í leikhlutanum og tryggði að Grindavík var aðeins einu stigi yfir fyrir lokaátökin, staðan 67-68. Grindvíkingar héldu áfram að spila góða vörn en Njarðvíkingar leystu það með því að skora tvo ævintýralega þrista í röð en Kristófer Breki svaraði í sömu mynt og allt í járnum 75-75. Jordan Semple fékk svo í kjölfarið sína fjórðu villu og settist á bekkinn en Dominykas Milka var á sama tíma búinn að vera lengi á bekknum hjá Njarðvík, einnig með fjórar villur. Lokamínútur leiksins urðu æsispennandi þar sem liðin skiptust á að setja risastór skot og á forystunni. Grindvíkingar þurftu að klára leikinn án Semple sem fékk sína 5. villu þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir og Milka fór sömu leið þegar Kane fiskaði á hann ruðning og rúm mínúta á klukkunni og staðan 84-86. Það urðu lokatölur leiksins þrátt fyrir ótrúlega dramatík í lokin þar sem boltinn dansaði á körfuhring Grindvíkinga og engu mátti muna að framlengja þyrfti leikinn. Atvik leiksins Þrát fyrir mikla spennu á lokamínútunum var síðasta karfa hans skoruð þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Njarðvíkingar komust svo í lykilsókn með rúmar tvær mínútur á klukkunni en Dwayne Lautier skrefaði á ögurstundu. Stjörnur og skúrkar Dwayne Lautier fór fyrir liði Njarðvíkinga í kvöld og hélt þá á löngum köflum hreinlega inni í leiknum með einstaklingsframtaki. Hann endaði með 30 stig og fimm fráköst. Njarðvíkingar hefðu án vafa viljað fá meira út úr Luwane Pipkins en hann skilaði heilum sjö stigum í hús í kvöld. Hjá Grindavík var Jeremy Pargo þeirra besti maður með 20 stig og átta stoðsendingar að auki. Hann tók sömuleiðis oft af skarið undir lokin og skilaði Grindvíkingum mikilvægum stigum þegar á reyndi. Jordan Semple var stigahæstur með 22 stig en gat ekki klárað leikinn eftir að hafa fengið fimm villur. Dómarar Það voru settir menn með reynslu á þennan leik, mögulega í ljósi þess hversu harkalega sauð uppúr síðast þegar liðin mættust. Þeir Kristinn Óskarsson, Gunnlaugur Briem og Eggert Þór Aðalsteinsson fengu það verkefni að dæma leikinn í kvöld. Þeir gerðu það ágætlega og höfðu fín tök á leiknum. Dæmdu tvær óíþróttamannslegar villur á Grindavík sem voru frekar mjúkar, en á móti kemur að menn voru lítið að æsa sig, öfugt við síðasta leik. Það vekur óneitanlega athygli að Grindvíkingar tóku aðeins tíu víti en Njarðvíkingar 27. Kannski er það þó ákveðin vísbending um ákafann í varnarleik Grindvíkinga, ég skal ekki segja og ætla ekki að draga of stórar ályktanir út frá þessari tölfræði. Stemming og umgjörð Frábær stemming í Ice Mar höllinni í kvöld sem er einfaldlega eitt flottasta íþróttahús landsins og húsið svo gott sem fullt. Það vakti þó nokkra reiði meðal áhorfenda að bjórinn kláraðist í hálfleik! Viðtöl Pargo: „Hlutir sem við þurfum að gera betur“ Jeremy Pargo í baráttunni í síðasta leikGuðmundur/Vísir Jeremy Pargo var fremstur meðal jafningja í liði Grindavíkur í kvöld og var sáttur með sigurinn í leikslok. „Frábært að ná í sigurinn en við þurfum að fara aftur að teikniborðinu því það eru hlutir sem við þurfum að gera betur. Við spilum aftur við þá á föstudaginn þannig að nú undirbúum við okkur bara undir þann leik og höldum áfram.“ Hvort er það sóknar- eða varnarleikurinn sem Grindvíkingar þurfa að laga? „Ég held að það sé sitt lítið af hvoru. Við vorum að gefa þeim of mörg opin skot og gáfum þeim líka alltof mörg víti, það er ekki séns að vítatölfræðin geti verið 27-10 en „what ever“. Sóknarlega tek ég þetta á mig. Ég tók nokkrar slæmar ákvarðanir og verð að gera betur.“ Þrátt fyrir að játa á sig mistök í sókninni þá var Pargo afar öflugur undir lokin og skoraði nokkur mikilvæg stig þegar á þurfti að halda. Hann virtist vera mjög einbeittur í því að sækja sigur. „Það er bara það sem úrslitakeppnin dregur fram í þér. Ef það gerist ekki, þá er eitthvað að. Nú þurfum við bara að bíta í skjaldarrendur og vera klárir í næsta leik.“ Pargo skiptir oft á Dominykas Milka í vörninni og virðist vera einn af fáum leikmönnum sem getur stoppað hann í að bakka inn í teig, þrátt fyrir að Milka eigi kíló eða tvö á hann. „Mér finnst ég vera mjög sterkur stundum. Kannski eru það ranghugmyndir hjá mér. Vonandi get ég bara fengið á hann villu öðru hvoru og fengið nokkur víti!“ Pargo er nokkuð brattur fyrir næsta leik í Grindavík. „Nú förum við aftur að teikniborðinu. Þetta verður bara alveg nýr og allt annar leikur. Við munum koma með nýja hluti að borðinu og þeir munu gera það sama. Þannig eru einvígin bara, hver leikur er einstakur og við þurfum bara að undirbúa okkur vel og vera klárir.“ Rúnar Ingi: „Ég fer bara brattur heim“ Rúnar og strákarnir hans þurfa að fara aftur til Grindavíkur á föstudaginn og reyna að sækja sigur.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var svekktur með tapið í kvöld en nokkuð brattur samt með frammistöðu sinna manna í jöfnum leik. „Bara svekkjandi að ná ekki að hanga á þessu. Þetta er bara stál í stál 50/50 og við fáum séns. Sven fær „floater“ inni í miðjunni. Bara gott „lúkk“. Kannski ekki það sem við vorum að leitast eftir en þeir gerðu vel að loka á okkur. Við náðum ekki að stela metrunum á innkastinu eins og við ætluðum að reyna, þetta var leiðinlegur staður að fá innkastið. En bara heilt yfir bara ánægður með orkuna í drengjunum.“ Leikurinn í kvöld var æsispennandi og mögulega vísbending um að serían fari alla leið í spennandi oddaleik, en Rúnar vill bara hugsa um einn leik í einu eins og vanalega. „Það er bara einn í einu. Það segja mér allir einhvern veginn að við eigum ekki að eiga séns. Þannig að við erum bara að taka hvern leikhluta fyrir sig. Reyna að spila okkar körfubolta og vera skynsamir og klókir. Taka góðar ákvarðanir og sjá hverju það skilar okkur. Það skilaði okkur sigri í leik eitt og að við vorum í 50/50 leik. Þannig að við höldum því áfram og sjáum hverju það skilar okkur.“ Hann segir að það sé ennþá nóg svigrúm til að bæta sig. „Við getum ennþá verið betri. Það voru of margir kaflar í kvöld þar sem það var bara eitthvað allskonar að gerast. Mér finnst leiðinlegt þegar gerist bara eitthvað allskonar. Það eru kannski lætin og við erum að setja inn nýja hluti. Við erum að nota Milka meira og kannski þegar það er kominn einhver æsingur í þetta þá er þetta ekki eðlið og þegar þetta ekki eðlið þá fara viðbrögðin þín undir áreiti með þig í eitthvað annað. Það er eitthvað sem ég mun skoða vel og hjálpa mínum mönnum að sækja á okkar styrkleika í 40 mínútur. Ef við hefðum gert það hér í kvöld þá held ég að við hefðum unnið. Þannig að ég fer bara brattur heim.“ Um það bil allir sérfræðingar á landinu, bæði þeir sem hafa það að atvinnu og þeir sem sitja í sófanum, hafa spáð Grindavík sigri í þessu einvígi. Rúnar segir að það sé þeim þó í raun engin sérstök hvatning fram yfir annað. „Bara hvaða hvatningu sem þú getur notað. Við erum svo sem bara inni í klefanum okkar og tala um hvað okkur langi að spila fleiri körfuboltaleiki í apríl. Að vera með svona stútfullt hús er bara akkúrat ástæðan fyrir því að við erum í þessu. Við erum meira bara að láta þetta snúast um okkur og hvað okkur langar. Hvað einhverjir sérfræðingar segja, hvort sem það var ég fyrir einverjum árum sköllóttur með slaufu eða einhverjr aðrir, á endanum skiptir það engu máli. Ef okkur langar ekki nógu mikið að fara áfram, sama hvað eitthvað fólk úti í samfélaginu segir, þá bara getum við pakkað saman.“ Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Njarðvík