Upp­gjörið KR - Kefla­vík 85-69 | KR-ingar voru feti framar allan leikinn og inn­byrtu sigur

Hjörvar Ólafsson skrifar
Molly Kaiser lék á als oddi í Vesturbænum í kvöld. 
Molly Kaiser lék á als oddi í Vesturbænum í kvöld.  Vísir/Pawel

KR bar sigurorð af Keflavík, 85-69, þegar liðin áttust við í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld.

KR-ingar náðu frumkvæðinu í leiknum strax í upphafi fyrsta leikhluta og byggðu hægt og rólega upp forskot sem leikmenn liðsins létu aldrei af hendi. 

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-17 KR í vil og heimakonur voru átta stigum yfir, 43-35, þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. 

Eve Braslis skoraði 25 stig í leiknum og hirti þar að auki 10 fráköst. Vísir/Pawel

Gestirnir frá Keflavík komu hins vegar sterkar inn í seinni hálfleikinn og Thelma Dís Ágústsdóttir minnkaði muninn í 45-43 í upphafi þriðja leikhluta. 

Þá tóku KR-ingar við sér á nýjan leik og með Molly Kaiser í broddi fylkingar náðu heimakonur aftur þægilegri forystu og litu aldrei um öxl eftir það. 

Það var við hæfi að Molly Kaiser setti niður síðasta skot leiksins sem var sjötta þriggja stiga karfa hennar í leiknum. Niðurstaðan sannfærandi 16 stiga sigur KR-liðsins sem er komið 1-0 yfir í einvígi liðanna. 

„,“ Daníel Andri Halldórsson

„,“ Hörður Axel Vilhjálmsson

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira