Uppgjörið:Njarðvík - Kefla­vík 82-86| Kefla­vík tryggði sér fimmta sætið

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Keflvíkingar fá Valsliðið í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Keflvíkingar fá Valsliðið í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. vísir / jón gautur

Njarðvík tók á móti Keflavík í lokaumferð Bónus deild karla í kvöld. Njarðvík var tryggt með 8. sæti deildarinnar á meðan Keflavík var enn í baráttu um að ná 5. Sætinu.

Eftir mikinn baráttuleik voru það gestirnir frá Keflavík sem reyndust sterkari á lokasprettinum og fóru með fjögurra stiga sigur 82-86 og tryggðu sér um leið 5. sætið í deildinni og mæta því Valsliðinu í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Eftir frekar jafnan leik framan af var það Njarðvík sem sigldi fram úr í lokinn og fóru á endanum með öruggan 26 stiga sigur 87-61 og tryggði sér um leið 2.sætið.

Leikurinn fór vel af stað fyrir gestina úr Keflavík sem mættu grimmir til leiks og byrjuðu fljótlega að safna góðu forskoti á lánlausa Njarðvíkinga sem voru ekki að skjóta vel.

Keflavík slakaði örlítið á eftir því sem leið á leikhlutann og Njarðvíkingar náðu að færast örlítið nær þeim en það voru þó gestirnir úr Keflavík sem leiddu nokkuð sannfærandi eftir fyrsta leikhluta 21-27.

Eins vel og leikurinn var að spilast fyrir Keflavík í fyrsta leikhluta þá snérist hann algjörlega í öðrum leikhluta. Njarðvíkingar fóru að hitta betur og ná stoppum á móti.

Þegar liðin gengu til hálfleiks voru Njarðvíkingar búnir að snúa leiknum sér í hag og leiddu með sex stig mun 48-42.

Það var mun jafnara með liðunum þegar þau mættu út í seinni hálfleikinn. Hart barist um alla bolta og það myndaðist fínasti hiti úti á gólfi.

Keflavík náði að jafna leikinn þegar leikhlutinn var við það að klárast en Dominykas Milka sá til þess að Njarðvík færi með tveggja stiga forskot inn í fjórða leikhluta 66-64.

Gríðarleg barátta einkenndi fjórða leikhlutann þar sem ekkert var gefið eftir og mátti sjá að hvert skot fór að vega aðeins þyngra og hvert stig fór að telja örlítið meira.

Eftir mikla baráttu voru það gestirnir frá Keflavík sem reyndust sterkari og fóru með öflugan fjögurra stiga sigur af hólmi 82-86 og tryggði sér um leið fimmta sætið og mætir Val í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Atvik leiksins 

Egor Koulechov setti stóru skotin og kom Keflavík yfir í fjórða leikhluta. Hann kom þeim svo í fjögurra stiga forystu með góðu skoti sem þeir náðu að halda allt til enda.

Stjörnur og skúrkar

Egor Koulechov var gríðarlega öflugur í liði Keflavíkur í kvöld og setti mörg stór skot í leiknum. Hann endaði stigahæstur í kvöld með 27 stig og tók auk þess 13 fráköst. Mirza Bulic reyndist Njarðvíkingum einnig erfiður viðureignar og hann endaði með 22 stig.

Hjá Njarðvíkingum var Dominykas Milka öflugastur og endaði með 23 stig og tók að auki 10 fráköst.

Dómararnir

Jóhannes Páll, Bjarni Hlíðvist og Sófus Máni sáu um dómgæsluna í kvöld.

Sitt sýnist hverjum um þeirra frammistöðu í kvöld en verkefnið í kvöld var afar erfitt. Mikill hiti og erfiður leikur að dæma. Ekki frábært en heldur ekki hrikalegt - einhversstaðar þarna mitt á milli.

Stemingin og umgjörð

Það er alltaf stuð og stemning í IceMar höllinni og þar var enginn undantekning í kvöld. Þetta var ákveðin forsmekkur fyrir úrslitakeppninni en það er alltaf fjör þegar þessi lið mætast. Það var vel mætt í stúkuna báðum meginn og stemmningin eftir því.

Viðtöl

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur.Vísir/Vilhelm

„Skemmtilegsti tíminn fyrir áhorfendur en kvíðakast fyrir þjálfarana“

„Mjög erfiður leikur í kvöld“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld.

„Við byrjuðum rosalega vel en vorum alltof slappir í öðrum leikhluta og við gáfum svolítið eftir. Þetta var mjög krefjandi leikur en fullt hrós á strákana að sýna þrautseigju í 40 mínútur og seinni hálfleikur var bara þokkalega góður“

Leikurinn var mjög jafn en það voru Keflvíkingar sem reyndust sterkari þegar uppi var staðið.

„Þetta skiptir bara rosalega miklu máli. Við erum ekki með leikstjórnandann okkar og maður fann alveg fyrir því á köflum hérna í kvöld en Halldór Garðar og Hilmar gerðu vel að taka upp boltann og þetta var bara torsóttur sigur“

„Ég held að á þessum tímapunkti vill maður sjá frammistöðu, maður vill sjá mann klára svona leiki og það gerðum við í kvöld og ég er mjög ánægður“

Skemmtilegasti tími ársins bíður nú handan við hornið en úrslitakeppnin tekur nú við.

„Skemmtilegsti tíminn fyrir áhorfendur en kvíðakast fyrir þjálfarana og þess háttar en þessvegna er maður í þessu. Þetta er það skemmtilegsta í þessu og maður er búin að vera allt tímabilið að bíða eftir þessum tímapunkti“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.

Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur.Vísir/Hulda Margrét

„Við verðum bara að vera klókari og betri“

„Alltaf ömurlegt að tapa fyrir Keflavík, ég get alveg verið hreinskilnn með það“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkur eftir tapið í kvöld.

„Við áttum alveg góða spretti í þessum leik. Mér fannst kannski bæði lið ekkert frábær í seinni hálfleik og þá sérstaklega sóknarlega fannst mér stirt hjá báðum liðum“

„Þeir kannski voru með ákveðnari laun til þess að ráðast á. Þeir voru mikið að leita af Egor í svona ójafna stöðu með Milka þarna aðeins neðar á vellinum og náðu að búa til nokkrar auðveldar körfur þannig“

„Ef ég tek það jákvæða þá er gott að fá svona baráttuleik, jafnan leik þar sem við getum prufað einhver kerfi sem við höfum verið með á æfingarspjaldinu inni því núna er nýtt mót að hefjast og það eru leikirnir sem að telja og skipta máli þannig við lærum af þessu“

„Það eru nokkur kerfi hérna á síðustu mínútunni sem við verðum bara að vera klókari og betri“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira