Uppgjörið KR - Keflavík 85-69 | KR-ingar voru feti framar allan leikinn og innbyrtu sigur Hjörvar Ólafsson skrifar 31. mars 2026 21:02 Molly Kaiser lék á als oddi í Vesturbænum í kvöld. Vísir/Pawel KR bar sigurorð af Keflavík, 85-69, þegar liðin áttust við í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld. KR-ingar náðu frumkvæðinu í leiknum strax í upphafi fyrsta leikhluta og byggðu hægt og rólega upp forskot sem leikmenn liðsins létu aldrei af hendi. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-17 KR í vil og heimakonur voru átta stigum yfir, 43-35, þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Eve Braslis skoraði 25 stig í leiknum og hirti þar að auki 10 fráköst. Vísir/Pawel Gestirnir frá Keflavík komu hins vegar sterkar inn í seinni hálfleikinn og Thelma Dís Ágústsdóttir minnkaði muninn í 45-43 í upphafi þriðja leikhluta. Þá tóku KR-ingar við sér á nýjan leik og með Molly Kaiser í broddi fylkingar náðu heimakonur aftur þægilegri forystu og litu aldrei um öxl eftir það. Það var við hæfi að Molly Kaiser setti niður síðasta skot leiksins sem var sjötta þriggja stiga karfa hennar í leiknum. Niðurstaðan sannfærandi 16 stiga sigur KR-liðsins sem er komið 1-0 yfir í einvígi liðanna. Daníel Andri Halldórsson fer yfir málin með leikmönnum sínum. Vísir/Pawel Daníel Andri: Náðum að stöðva flæðið hjá þeim „Það var gríðarleg samheldni í liðinu og mikil orka í því sem við vorum að gera. Leikmenn voru óhræddir við að taka skotin og það var mikið sjálfstraust í því sem við vorum að gera í sóknarleiknum,“ sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, sáttur. „Við komum ekki nógu vel inn í þriðja leikhluta en mér leið allan tímann vel með það sem við vorum að gera. Þess vegna tók ég ekki leikhlé þrátt fyrir að þær væru að gera áhlaup. Leikmenn fundu taktinn bara aftur og við komumst í gírinn á báðum endum vallarins,“ sagði Daníel Andri enn fremur. „Keflavík er með lið sem getur verið snöggt að koma til baka og skora mörg stig á skömmum tíma. Það var fátt í Keflavíkurliðinu sem kom mér á óvart og við náðum að stöðva flæðið hjá þeim sem er mikilvægt. Nú er stefnan að fara til Keflavíkur og koma okkur í 2-0,“ sagði hann um framhaldið. „Mér finnst frammistaðan heilt yfir bara ekki alveg nógu góð. Við vorum skrefi á eftir allan leikinn og það vantaði upp á að tengja saman góðar varnir til þess að ná að koma okkur almennilega inn í leikinn,“ Hörður Axel Vilhjálmsson Hörður Axel Vilhjálmsson freistar þess að finna lausnir með leikmönnum sínum. Vísir/Pawel Bónus-deild kvenna KR Keflavík ÍF