Leik lokið: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum

Kári Mímisson skrifar
Daniel Love skoraði 21 stig fyrir Ármann í kvöld.
Daniel Love skoraði 21 stig fyrir Ármann í kvöld. Vísir/Anton

Ármenningar stigu stórt skref í átt að því að halda sér í Bónusdeild karla í körfubolta eftir sextán stiga sigur á nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur, 103-87. 

Grindvíkingar hvíldu Deandre Kane og voru heilum horfnir í Höllinni í kvöld á meðan heimamenn fóru á kostum. Sigurinn þýddi líka að Skagamenn eru fallnir.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Steinar Kaldal þjálfari ÁrmannsVísir/Diego

„Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“

Steinar Kaldal þjálfari Ármanns var að vonum sáttur með sigur liðsins gegn nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur. Ármenningar tóku forystuna strax í upphafi leiks og tókst að halda gestunum í hæfilegri fjarlægð frá sér allan tímann.

„Við þurftum á þessum sigri að halda enda vissum við að Þór og ÍA myndu vera áfram á eftir okkur. Þetta var mjög mikilvægur leikur hjá okkur og jafn mikilvægur og síðasti leikur á móti Þór, þannig að við erum búnir að vinna núna tvo gríðarlega mikilvæga sigra í röð til þess að halda okkur á lífi.“

Steinar segir að vikan hafi verið góð en liðið vann risasigur gegn Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð en bæði þessi lið eru að berjast við að halda sér í deildinni.

„Við gáfum okkur fimmtudaginn til þess að njóta sigursins á Þór og svo fórum við bara í vinnuna strax eftir þann dag. Æfingavikan var góð og menn voru einbeittir. Byrjunin í kvöld var sterk og við hittum svakalega vel, sérstaklega framan af leik. Okkur tókst að keyra á þá, taka þetta opna skot og fengum sjálfstraust í leiðinni. Það er í rauninni það sem skilar okkur sigrinum í kvöld.“

Með sigrinum í kvöld er ljóst að örlög Ármanns eru enn í þeirra höndum. Liðið mætir ÍA í síðustu umferðinni en ljóst er að annað liðið mun falla. Steinar er rólegur spurður út í leikinn gegn ÍA og segist ætla að leyfa sínum mönnum að fagna aðeins í kvöld áður en undirbúningur hefst fyrir leikinn mikilvæga gegn ÍA.

„Nú höldum við bara einbeitingunni. Þetta eru búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir. Við erum tilbúnir að leggja okkar alla í þetta í vikunni en leyfum okkur þó að njóta kvöldsins og svo er bara æfing á morgun.“

Bragi Guðmundsson var frábær í kvöld líkt og í síðustu viku gegn Þór. Steinar hrósar Braga en bendir þó á að liðið hafi verið að fá stór framlög frá mörgum í kvöld.

„Bragi er bara hrikalega öflugur leikmaður sem spilar á öðrum hraða heldur en flestir aðrir. Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur og hefur þroskast töluvert í vetur. Í kvöld fengum við 10 stig hjá fimm eða sex leikmönnum og það var það sem skilar sigrinum. Okkur tókst að láta boltann ganga og dreifa stigunum, sem er það sem þarf hjá okkur.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira