Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 18. mars 2026 17:17 Markaregn í leiknum í kvöld. Vilhelm Gunnarsson Stjarnan og Fram skildu jöfn 34-34, í næstsíðustu umferð Olís deild kvenna í kvöld. Stjörnunni tókst að forðast fall í bili og ljóst að fallbaráttan mun ráðast í lokaumferðinni. Allt var í járnum á fyrsta stundarfjórðungnum en Fram komst í tveggja marka forystu um miðbik fyrri hálfleiks. Liðið missti forskotið niður skömmu seinna eftir tvær misheppnaðar sóknir í röð. Stjarnan nýtti það og sneri taflinu við og komst tveimur mörkum yfir. Fram svaraði með þremur mörkum í röð á meðan Stjarnan var markalaus. Stjarnan leiddi þá með einu marki þegar liðin gengu inn í hálfleikinn. Stjarnan náði fljótlega að komast í tveggja marka forystu í seinni hálfleiknum. Stjarnan virtist þá vera með leikinn í hendi sér undir lokin þegar liðið var með fjögurra marka forystu. Fram neitaði þá að gefast upp og minnkaði muninn jafn og þétt á lokakaflanum á meðan þreytumerki fóru að sjást á liði Stjörnunnar. Á lokamínútu leiksins voru liðin jöfn og var tækifæri fyrir Stjörnuna að komast yfir en liðið tapaði boltanum. Fram hafði þá möguleika á að vinna leikinn í lokasókninni en tókst ekki að nýta sér það. Niðurstaðan 34-34 jafntefli og fallsætið ræðst í lokaumferðinni. Stjarnan og Selfoss eru bæði með sex stig í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar eftir umferð kvöldsins. Selfoss stendur betur að vígi á innbyrðisviðureignum. Það þýðir að Stjarnan þarf að minnsta kosti jafntefli í lokaumferðinni og um leið þarf liðið að treysta á að ÍR leggi Selfoss að velli ætli liðið að halda sæti sínu í deildinni. Atvik leiksins Stjarnan var í bílstjórasætinu og leiddi með fjórum mörkum þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Þreytan í liði Stjörnunnar tók þá völdin og missti liðið sigurinn úr höndum sér. Stjörnur og skúrkar Natasja Hammer var markahæst í liði Stjörnunnar í kvöld með sjö mörk og fimm stoðsendingar, Sara Katrín Gunnarsdóttir kom þar næst með sex mörk og fimm stoðsendingar. Natasja Hammer öflug fyrir heimakonur í kvöld.Vilhelm Gunnarsson Dagmar Guðrún Pálsdóttir var markahæst í liði Fram með níu mörk og fjórar stoðsendingar. Harpa María Friðgeirsdóttir var þá með átta mörk. Dagmar átti hörku leik fyrir Fram.Vilhelm Gunnarsson Stemning og umgjörð Ágætis mæting í Heklu höllina miðað við miðvikudagskvöld á besta tíma. Dómarar Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson stóðu vaktina í kvöld. Fín dómgæsla að mínu mati og engir vafadómar. Lítið um ósætti við dómarana þó svo að Vilhelm hafi nú náð þessari mynd af Haraldi, þjálfara Fram.Vilhelm Gunnarsson Olís-deild kvenna Stjarnan Fram