Upp­gjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Markaregn í leiknum í kvöld.
Markaregn í leiknum í kvöld. Vilhelm Gunnarsson

Stjarnan og Fram skildu jöfn 34-34, í næstsíðustu umferð Olís deild kvenna í kvöld. Stjörnunni tókst að forðast fall í bili og ljóst að fallbaráttan mun ráðast í lokaumferðinni.

Allt var í járnum á fyrsta stundarfjórðungnum en Fram komst í tveggja marka forystu um miðbik fyrri hálfleiks. Liðið missti forskotið niður skömmu seinna eftir tvær misheppnaðar sóknir í röð.

Stjarnan nýtti það og sneri taflinu við og komst tveimur mörkum yfir. Fram svaraði með þremur mörkum í röð á meðan Stjarnan var markalaus. Stjarnan leiddi þá með einu marki þegar liðin gengu inn í hálfleikinn.

Stjarnan náði fljótlega að komast í tveggja marka forystu í seinni hálfleiknum. Stjarnan virtist þá vera með leikinn í hendi sér undir lokin þegar liðið var með fjögurra marka forystu. Fram neitaði þá að gefast upp og minnkaði muninn jafn og þétt á lokakaflanum á meðan þreytumerki fóru að sjást á liði Stjörnunnar.

Á lokamínútu leiksins voru liðin jöfn og var tækifæri fyrir Stjörnuna að komast yfir en liðið tapaði boltanum. Fram hafði þá möguleika á að vinna leikinn í lokasókninni en tókst ekki að nýta sér það. Niðurstaðan 34-34 jafntefli og fallsætið ræðst í lokaumferðinni.

Stjarnan og Selfoss eru bæði með sex stig í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar eftir umferð kvöldsins. Selfoss stendur betur að vígi á innbyrðisviðureignum. Það þýðir að Stjarnan þarf að minnsta kosti jafntefli í lokaumferðinni og um leið þarf liðið að treysta á að ÍR leggi Selfoss að velli ætli liðið að halda sæti sínu í deildinni.

Atvik leiksins

Stjarnan var í bílstjórasætinu og leiddi með fjórum mörkum þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Þreytan í liði Stjörnunnar tók þá völdin og missti liðið sigurinn úr höndum sér.

Stjörnur og skúrkar

Natasja Hammer var markahæst í liði Stjörnunnar í kvöld með sjö mörk og fimm stoðsendingar, Sara Katrín Gunnarsdóttir kom þar næst með sex mörk og fimm stoðsendingar.

Natasja Hammer öflug fyrir heimakonur í kvöld.Vilhelm Gunnarsson

Dagmar Guðrún Pálsdóttir var markahæst í liði Fram með níu mörk og fjórar stoðsendingar. Harpa María Friðgeirsdóttir var þá með átta mörk.

Dagmar átti hörku leik fyrir Fram.Vilhelm Gunnarsson

Stemning og umgjörð

Ágætis mæting í Heklu höllina miðað við miðvikudagskvöld á besta tíma.

Dómarar

Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson stóðu vaktina í kvöld. Fín dómgæsla að mínu mati og engir vafadómar.

Lítið um ósætti við dómarana þó svo að Vilhelm hafi nú náð þessari mynd af Haraldi, þjálfara Fram.Vilhelm Gunnarsson

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira