Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2026 21:25 Arnór Snær Óskarsson skoraði 12 mörk fyrir Val. vísir Deildarmeistarar Vals þurftu á framlengingu að halda til að sigra HK, sem hafnaði í áttunda sæti Olís-deildarinnar, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í handbolta í kvöld. Lokatölur 42-39 eftir bráðfjörugan leik. Valsmenn skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en það var svo gott sem í eina skiptið sem hægt var að segja að heimamenn væru með einhverskonar tök á leiknum. HK-ingar voru fljótir að jafna metin og eftir það skiptust liðin á að skora. Valsmenn voru hálfu skrefi framar, en gestirnir í HK náðu forystunni í tvígang í fyrri hálfleik. Valsliðið náði tveggja marka forskoti á ný stuttu fyrir hálfleikshléið, en HK átti síðasta orðið í fyrri hálfleik og staðan því 17-16, Val í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Það voru svo HK-ingar sem komu öflugri til leiks í seinni hálfleik. Valsmenn höfðu yfirhöndina áfram fyrstu mínúturnar eftir hlé, en þá tóku gestirnir völdin og skoruðu sjö mörk í röð, hvorki fleiri né færri. HK-ingar breyttu stöðunni úr 21-19 í 21-26 og á þeim tíma tóku Valsmenn tvö leikhlé. Heimamenn náðu að rétta úr kútnum eftir þennan slæma kafla og söxuðu jafnt og þétt á forskot HK-inga. Það var þó ekki fyrr en að rétt um tvær mínútur voru til leiksloka að Valur náði loksins að jafna metin í 31-31. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar. Liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleik framlengingar, en það voru Valsmenn sem fóru með eins marks forskot inn í stutta pásu. Í síðari hálfleik framlengingar sigldu Valsmenn svo nokkuð örugglega fram úr og unnu að lokum þriggja marka sigur, 42-39. Atvik leiksins Innkoma Jovans Kukobat í mark HK-inga var algjörlega frábær. Þessi 38 ára gamli markmaður kom inn til að freista þess að verja víti í fjögur skipti og Valsmenn skoruðu aðeins úr einu þeirra. Jovan varði tvö víti og Arnór Snær Óskarsson vippaði einu í slá. Stjörnur og skúrkar Arnór Snær Óskarsson var frábær að mestu leyti fyrir Val í kvöld. Eftir magnaðan fyrri hálfleik dró aðeins af honum eftir hlé, en hann steig aftur upp þegar liðið þurfti á honum að halda og endaði með 12 mörk fyrir Valsliðið. Í liði HK voru þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Ágúst Guðmundsson atkvæðamestir með átta mörk hvor. Leikmenn beggja liða þurfa þó aðeins að skoða betur hvernig á að klára sóknir með skotum. Valsmenn töpuðu 11 boltum og HK-ingar 12. Þá gerðu líklega einhverjir ráð fyrir því að Björgvin Páll Gústavsson myndi eiga betri leik í kvöld, en hann endaði með tíu varin skot, eða um 23 prósent hlutfallsmarkvörslu. Þó má hann eiga það að nokkrar af þessum vörslum komu á mikilvægum tímapunktum. Stemning og umgjörð Eins og svo oft áður var umgjörðin í N1-höllinni til fyrirmyndar. Stemningin í stúkunni var líka virkilega góð, og þá sérstaklega HK megin. Olís-deild karla Valur HK