Leiðandi afl í nýrri atvinnustefnu Íslands Einar Bárðarson skrifar 17. mars 2026 10:45 Á morgun fara Íslensku tónlistarverðlaunin fram í Hörpu. Þar koma tónlistarmenn saman og fagna því sem dómnefndir verðlaunanna meta sem bestu framlögin í íslenskri tónlist á liðnu ári. Þessi hátíð hefur verið haldin allt frá lokum síðustu aldar og er orðin fastur liður í menningarlífi þjóðarinnar. Í dag er sannarlega hátíðisdagur. Það er sérstaklega ánægjulegt að fagna íslenskri tónlist í þessari viku. Um helgina fóru hér fram tónleikar sem eiga sér vart nokkra hliðstæðu á Íslandi. Hundruð vinnandi handa komu að verkefninu – í hljóðvinnslu, myndvarpi, ljósastýringu, öryggismálum, umferðastjórnun, almenningssamgöngum, gæslu, veitingum, þrifum, hönnun og líkast til einhverju fleiru. Þannig var það ekki bara Laufey sem skein skært heldur verðum við líka að fagna því að eiga viðburða- og tónleikahaldara sem geta skipulagt jafn vel heppað mannamót og þetta. Átta þúsund gestir, tvö kvöld í röð á yfirbyggðum fótboltavelli og allt eins og best verður á kosið í gæðum, hvar sem litið var. Ég tek hatt minn ofan fyrir Ísa, Senu Live og öllum þeim fjölda fagfólks sem að þessu koma með þeim. Þetta er vistkerfi skapandi greina. Laufey Lín Jónsdóttir er í dag þekktasti íslenski tónlistarmaður heims. Hún nýtur mikillar virðingar á alþjóðavettvangi fyrir verkin sín, sönginn, hljóðfæraleikinn og þann heildarheim sem hún og teymi hennar hafa byggt upp í kringum listsköpunina. „Laufeyland“ er ekki bara persóna eða tónlistarstefna. Það er hagkerfi – sem hefur verið byggt upp með metnaði, menntun og þrautseigju.Laufey er í raun sín eigin áhættufjárfesting sem nú er farin að skila margföldum ávinningi. Þegar hún lauk tónleikaferð sinni með tveimur uppseldum tónleikum í Kórnum í Kópavogi – afrek sem aðeins örfáum alþjóðlegum poppstjörnum á borð við Justin Bieber og Justin Timberlake hefur tekist áður hér á landi – var það skýr staðfesting á því gengi sem hún hefur náð í „kauphöll“ alþjóðlegrar tónlistar. Árangur hennar er þó ekki tilviljun. Hann er afrakstur samspils margra: hennar eigin vinnu, stuðnings fjölskyldu, leiðsagnar tónlistarkennara og þess öfluga tónlistarskólakerfis sem hefur um áratugi verið ein af stoðum íslensks menningarlífs. Á sunnudagskvöldið ávarpaði hún meðal sinna nánstu Sigurgir sellókennarann sinn með þökkum og það er rauður þráður í hennar þakklæti. Þegar Laufey tók við Grammy-verðlaunum sínum fyrr á árinu minnti hún sérstaklega á upprunann – tónlistarkennsluna og tónlistarskólana. Margir túlkuðu orð hennar sem ábendingu til stjórnvalda í Bandaríkjunum. En sannleikurinn er sá að sama áminning á erindi hér heima líka. Við megum ekki gleyma því hvaðan árangurinn kemur. Nú er ekki tíminn til að draga saman seglin í listmenntun og skapandi greinum. Hvorki í menntun eða stoðkerfi. Þvert á móti ætti þessi árangur að minna okkur á hversu mikil verðmæti felast í því að fjárfesta í menntun, sköpun og menningu. Tónlist og aðrar skapandi greinar geta – og eiga – að vera leiðandi afl í nýrri atvinnustefnu Íslands. Að lokum hvet ég öll til að fylgjast með afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunna og sjá hvað stendur upp úr að mati fagdómnefnda og við skipuleggjendur kvöldins segi ég gangi ykkur vel og takk fyrir okkur. Höfundur er stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar Íslands og fyrrum framkvæmdastjóri ÍTV. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Íslensku tónlistarverðlaunin Tónlist Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar