Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 14:34 Gunnar Bragi Sveinsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins, veltir fyrir sér hvort andstaða flokksins við ESB sé ástæða þess að stjórn samtaka evrópskra íhalds- og umbótaflokka hafi ekki tekið afstöðu til umsóknar hans um aðild. Vísir/Vilhelm Stjórn samtaka íhalds- og umbótaflokka á Evrópuþinginu hefur enn ekki afgreitt umsókn Miðflokksins um aðild að alþjóðlegu hliðarneti þeirra frá því í fyrra. Framkvæmdastjóri Miðflokksins segir óljóst hvort það sé vegna andstöðu hans við Evrópusambandið.
Heimildin fullyrti í umfangsmikilli umfjöllun sinni um alþjóðlegar tengingar Miðflokksins á dögunum að flokkurinn væri í aðildarferli hjá Íhalds- og umbótaflokki Evrópu (ECR), þingflokki hægriflokka á Evrópuþinginu. Hvorki flokkurinn né samtökin staðfestu það þó við blaðið. Gunnar Bragi Sveinsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins, staðfestir að flokkurinn hafi sóst eftir aðild að alþjóðlegu hliðarneti ECR í fyrra. „Ísland býr svo vel að eiga ekki fulltrúa á Evrópuþingi og eins og gefur að skilja getur íslenskur stjórnmálaflokkur því ekki verið formlegur hluti af slíku flokkasamstarfi,“ segir Gunnar Bragi í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Ekki hafi þó orðið af þessari aukaaðild þar sem stjórn ECR hafi ekki afgreitt umsóknina. „Hvort það er vegna andstöðu okkar við ESB vitum við ekki,“ segir Gunnar Bragi í svari sínu. Sannir Finnar og Svíþjóðardemókratar fyrir á fleti Svíþjóðardemókratar í Svíþjóð og Sannir Finnar í Finnlandi eiga meðal annars aðild að ECR á Evrópuþinginu. Þá er Bræðralag Ítalíu, flokkur Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Lög og réttlæti, fyrrverandi stjórnarflokkur Póllands, þar innan borðs. Sjálfstæðisflokkurinn átti aðild að ECR þar til fyrir nokkrum árum. Hann er nú aðild að Evrópska lýðflokknum sem kristilegir demókrataflokkar eru áberandi í. Adam Bielan, Evrópuþingmaður Laga og réttlætis, sagði Ríkisútvarpinu á þriðjudag að ECR ætti í góðum tengslum við Miðflokkinn enda deildi hann í meginatriðum sömu skoðunum.
Miðflokkurinn Evrópusambandið Alþingi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira