Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kjartan Kjartansson skrifar 9. mars 2026 15:11 Helgi Áss Grétarsson hefur tekið sæti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn á síðustu tveimur fundum hennar þrátt fyrir að rúmur mánuður sé frá því að hann skipti yfir í Miðflokkinn. Helgi Áss Grétarsson Helgi Áss Grétarssson, varaborgarfulltrúi, hefur tekið sæti Sjálfstæðisflokksins á tveimur af þremur fundum borgarstjórnar frá því að hann skipti yfir í Miðflokkinn í síðasta mánuði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins sagðist ekki sjá fram á að Helgi yrði kallaður inn í borgarstjórn á þeim tíma.
Ákvæði sveitarstjórnarlaga þýða að þrátt fyrir að Helgi Áss hafi skipt um flokk í byrjun febrúar þá verði að kalla hann inn sem varamann í borgarstjórn ef einhver borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins forfallast. Staða Helga Áss sem fyrsta varaborgarfulltrúa gefur honum einnig að minnsta kosti tæpa hálfa milljón króna í laun frá borginni þrátt fyrir að hann gegni ekki lengur neinum nefndarstörfum eða trúnaðarstörfum fyrir flokkinn sem hann bauð sig fram fyrir. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki gera ráð fyrir að það kæmi til þess að Helgi Áss yrði kallaður inn í borgarstjórn í síðasta mánuði. „Við erum öll frísk og í fullu stuði í Sjálfstæðisflokknum og sjáum ekki fram á mikil forföll fram á vorið þannig að það er engin ástæða til að skattgreiðendur séu að greiða mönnum laun fyrir þetta,“ sagði hún við Vísi 5. febrúar. Helgi Áss svaraði ekki ítrekuðum spurningum um hvort hann hygðist taka sæti í borgarstjórn ef einhver sjálfstæðismanna forfallaðist. Vísaði hann aðeins til sveitarstjórnarlaga um að fyrsti varaborgarfulltrúi flokks skuli kallaður inn. Tók sæti Friðjóns Frískleiki borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins virðist þó hafa breyst frá því að Hildur lét þessi orð falla. Frá því að Helgi Áss sagði skilið við Sjálfstæðisflokkinn hafa þrír borgarstjórnarfundir farið fram en þær eru haldnir hálfsmánaðarlega. Hann fylgdist með sem áhorfandi á þeim fyrsta 3. febrúar. Hann tók síðan sæti í borgarstjórn bæði 17. febrúar og 3. mars. Friðjóni Friðjónssyni var boðið sæti neðarlega á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar í vor. Hvort það hafði áhrif á fjarveru hans á tveimur síðustu borgarstjórnarfundum skal ósagt látið.Vísir/Einar Helgi Áss tók sæti Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hvorki náðist í Hildi né Friðjón strax við vinnslu þessarar fréttar. Af samfélagsmiðlafærslum Friðjóns að ráða virðist hann meðal annars hafa verið í langferð erlendis í febrúar. Friðjóni var boðið sæti neðarlega á lista Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði Vísi í síðasta mánuði að hann væri sáttur við þau örlög. Sat hjá ásamt nýjum miðflokksfélögum hans Á fundinum 17. febrúar sat Helgi Áss hjá við afgreiðslu á tillögum stýrihóps um umbætur á leikskólum ásamt fyrrum félögum hans í Sjálfstæðisflokknum. Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon tilkynntu um fyrir helgi að þau hefðu einnig sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Hvorugt þeirra hlaut brautargengi hjá Sjálfstæðisflokknum þegar raðað var á framboðslistann fyrir kosningarnar í maí. Þau þrjú sátu hjá þegar fulltrúar meirihlutans vísuðu frá tillögu sjálfstæðismanna um að teknar yrðu upp viðræður um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á fundi borgarstjórnr 3. mars, þremur dögum áður en Kjartan og Marta yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn. Eftir vistaskiptin á Miðflokkurinn nú skyndilega tvo borgarfulltrúa auk fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn fékk 2,4 prósent atkvæða í borgarstjórnarkosningunum 2022. Sjálfstæðisflokkurinn, sem hóf kjörtímabilið með sex borgarfulltrúa, stendur eftir með fjóra fulltrúa í borgarstjórn. Borgarstjórnarflokkur hans minnkar niður í þrjá ef eitthvert þeirra Hildar, Friðjóns, Björns Gíslasonar eða Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur forfallast því þá verður að kalla Helga Áss inn í staðinn. Helgi Áss er í fimmta sæti framboðslista Miðflokksins í borginni.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Tengdar fréttir Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Frá þessu greindi Helgi í samtali við þáttastjórnendur Bítisins á Bylgunni í morgun. 20. janúar 2026 08:36 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira
Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Frá þessu greindi Helgi í samtali við þáttastjórnendur Bítisins á Bylgunni í morgun. 20. janúar 2026 08:36