Hreyflaskipti á flugvél dýrari en einbýlishús Kristján Már Unnarsson skrifar 27. febrúar 2026 08:28 Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair. Egill Aðalsteinsson „Það er allt dýrt í flugi. Það er bara svoleiðis,“ svarar Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, þegar spurt er hversvegna fargjöldin séu svona dýr. Hann nefnir sem dæmi hreyflaskipti á Dash 8-vélunum. „
Við lentum óvænt í því að þurfa að skipta um mótora, tvo mótora. Og það er ekkert einbýlishúsaverð, sko. Það fer vel yfir það,“ segir Magnús. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ um innanlandsflotann er vikið að þessu helsta umkvörtunarefni farþega í innanlandsflugi, sem eru dýr flugfargjöld. Eru menn ekkert að sjá verðlækkanir á næstunni? Flugrekstur er í eðli sínu dýr, svarar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í þættinum. Hér má sjá sjö mínútna kafla: „Þetta eru dýr tæki og þetta er flókinn rekstur. Svo er náttúrlega alltaf afstætt hvað er dýrt. Ef þú bókar með ágætis fyrirvara þá færðu bara mjög góð fargjöld,“ segir Bogi. „Ég get allavega fullvissað ykkur um það að við erum ekki með fargjöldin dýrari en þau þurfa að vera,“ segir Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair. Tómas Dagur Helgason, flugrekstrarstjóri Norlandair.Lýður Valberg Sveinsson „Þetta er dýr rekstur. Það er mikið regluverk sem þarf að framfylgja og við þurfum að fara eftir. Þetta kostar allt sitt,“ segir Tómas Dagur. Hörður Guðmundsson, sem rak Flugfélagið Erni í yfir hálfa öld, og Kolbeinn Ingi Arason, sem rak Flugfélag Austurlands um árabil, eru einnig spurðir um flugfargjöldin í þættinum. Áskrifendur geta séð alla þætti Flugþjóðarinnar í heild á streymisveitunni Sýn+. Hér má sjá kynningarstiklu þriðju seríu Flugþjóðarinnar:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. 25. febrúar 2026 14:15 Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13 Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins. 14. febrúar 2026 07:57 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira
Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Þegar sérleyfiskerfi í innanlandsflugi var afnumið árið 1997 hóf Íslandsflug beina samkeppni við Flugfélag Íslands á öllum helstu leiðum innanlands. Flugfélagið svaraði samkeppninni með því að lækka fargjöldin um 51 prósent. 25. febrúar 2026 14:15
Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Það eru annir á Reykjavíkurflugvelli að vetrarmorgni, flugvélar að koma og fara. Áhöfn frá Norlandair, nýkomin úr sjúkraflugi, er að gera sjúkraflugvélina klára fyrir næsta útkall. Áhöfn Icelandair er að koma úr flugi frá Egilsstöðum og önnur að búa sig undir flug til Akureyrar. Fjær sjáum við aðra flugvél Norlandair aka frá Flugfélagsafgreiðslunni. 19. febrúar 2026 13:13
Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins. 14. febrúar 2026 07:57