Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2026 11:48 Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur verið myrkur í máli þegar kemur að sambandi Bandaríkjanna og Kanada. Meðal annars hefur hann sagt að það verði aldrei aftur eins og það hefur verið. AP/Eduardo Lima Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada.
Samband ríkjanna hefur beðið mikla hnekki að undanförnu eftir að Trump hefur beitt nágranna sína umfangsmiklum tollum og sagst ætla að reyna að þvinga Kanadamenn til að verða hluti af Bandaríkjunum, svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Samkvæmt frétt New York Times stendur til að kynna nýja hergagnaiðnaðarstefnu Kanada í þessari viku. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur heitið því að auka fjárútlát til varnarmála og hafa Kanadamenn samþykkt viðmið Atlantshafsbandalagsins um að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Síðasta sumar hækkaði Carney fjárútlát til varnarmála í Kanada í tvö prósent. Hann hefur einnig heitið því að Kanada muni ekki lengur kaupa um sjötíu til 75 prósent af vopnum sínum frá Bandaríkjunum. NYT segir að samkvæmt nýju hergagnaiðnaðarstefnunni standi til að um sjötíu prósent af peningunum sem fara í varnarmál fari til kanadískra fyrirtækja. Þannig vill ríkisstjórnin auka tekjur kanadískra fyrirtækja um 240 prósent og gera fyrirtækjum kleift að auka framleiðslu og selja hergögn til annarra ríkja. Þá vonast ríkisstjórnin til þess að skapa 125 þúsund störf á næstu tíu árum. Rekja breytinguna til NATO Kanadíska ríkisútvarpið (CBC) segir að nýja stefnan hafi að mestu ekki verið samin með samskiptin við Bandaríkjamenn í huga. Hún eigi frekar rætur að rekja til áðurnefnds viðmiðs NATO og ákalls þar um breytingar. Sambærileg þróun hvað varðar Bandaríkin hefur þó einnig átt sér stað í Evrópu, þar sem ráðamenn þar óttast að ekki sé lengur hægt að reiða á Bandaríkin og er unnið að því að byggja upp hergagnaframleiðslu þar og gera heri Evrópu sjálfstæðari frá Bandaríkjunum. Þessu hafa ráðamenn í Bandaríkjunum mótmælt, á sama tíma og þeir hafa þrýst mjög á bandamenn sína til að taka meiri ábyrgð á eigin vörnum og verja meiru til varnarmála. Sjá einnig: Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Samkvæmt skýrslu sænsku hugveitunnar Stockholm International Peace Research Institute, eða SIPRI, sem gefin var út í desember, hafa vandræði með birgðakeðjur og aðföng hægt á uppbyggingunni í Evrópu. Skoða aftur kaup á bandarískum herþotum Ráðamenn í Kanada eru að endurskoða þá ákvörðun að kaupa 88 F-35 herþotur frá Bandaríkjunum en þetta er í annað sinn sem slík endurskoðun er gerð. Enn sem komið er hafa Kanadamenn skuldbundið sig til að kaupa sextán þotur en eins og fram kemur í grein NYT hefur sú ákvörðun að kaupa 88 verið harðlega gagnrýnd. Margir segja þoturnar henta Kanada illa og þær séu allt of dýrar. Þá hefur verið gagnrýnt að þær yrðu nánast alfarið framleiddar í Bandaríkjunum og myndu lítið hjálpa kanadískum iðnaði. Ein leið sem sögð er koma til greina er að kaupa fáar F-35 þotur en kaupa fleiri JAS Gripen E herþotur frá Svíþjóð. Fjórar slíkar þotur, auk F-35 þota frá Danmörku og Eurofighter Typhoon þota eru hér á Íslandi um þessar mundir. Forsvarsmenn Saab hafa sagt að ákveði Kanadamenn að kaupa Gripen-þotur muni fyrirtækið starfa með kanadíska flugvélaframleiðendanum Bombardier og framleiða þær í Kanada. Kanadamenn íhuga einnig að kaupa sér tólf nýja dísilkafbáta og þykir líklegast að þeir verði framleiddir í Suður-Kóreu eða Þýskalandi.
Kanada Bandaríkin Hernaður Donald Trump Tengdar fréttir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt. 14. febrúar 2026 09:29 Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demkrötum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær og mynduðu meirihluta sem samþykkti að fella niður tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á Kanada í fyrra. 12. febrúar 2026 06:44 Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07 Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01 Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07 „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. 24. janúar 2026 11:58 Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48 Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt áfram ögrunum sínum í nótt og birti nú í morgunsárið mynd af sér, JD Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra að nema land á Grænlandi. 20. janúar 2026 06:29 Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Státum af klárasta barþjóni Evrópu Innlent Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Innlent Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Vegum lokað og varað við ferðalögum á Suðurlandi Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Fleiri fréttir Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Sjá meira
Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt. 14. febrúar 2026 09:29
Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demkrötum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær og mynduðu meirihluta sem samþykkti að fella niður tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á Kanada í fyrra. 12. febrúar 2026 06:44
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01
Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07
„Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. 24. janúar 2026 11:58
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48
Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt áfram ögrunum sínum í nótt og birti nú í morgunsárið mynd af sér, JD Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra að nema land á Grænlandi. 20. janúar 2026 06:29