Misskilningur um launavísitöluna Ragnar Þór Ingólfsson skrifar 13. febrúar 2026 08:32 Launavísitölufrumvarpið svo kallaða er nú til meðferðar á Alþingi, og hefur málið verið talsvert í fréttum undanfarna daga. Um er að ræða eitt af lykilmálum Flokks fólksins, um að tryggja að ellilífeyrir og örorkulífeyrir taki árlega breytingum til samræmis við launavísitölu, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í gildi er svipuð regla, nema að í dag er uppfærslan miðuð við launaþróun en ekki launavísitölu. Í framkvæmd hefur ávallt verið miðað við spá um launaþróun næsta árs, og sú spá hefur oftar en ekki reynst langt frá raunverulegri launaþróun þegar uppi er staðið. Því viljum við í Flokki fólksins miða við hlutlægan mælikvarða, launavísitölu Hagstofu Íslands. Með því að tryggja að lífeyrir fylgi launum komum við í veg fyrir kjaragliðnun, þ.e. að lífeyrir haldi ekki í við launastig. Í dag munar rúmum 110 þúsund krónum á grunnellilífeyri, sem er 365.592 kr. og lægstu launum, sem eru 476.093 kr. (samkvæmt samningi Eflingar og SA). Við viljum ekki að bilið breikki meira. Við viljum að lífeyrir almannatrygginga dugi til framfærslu. Eins göfugt og markmið þessa frumvarps er þá hefur það engu að síður mætt mikilli mótstöðu, og því miður virðist sem svo að gagnrýnin á frumvarpinu byggi að miklu leyti á misskilningi. Í grein eftir Axel Hall og Gylfa Zoega sem birtist í Vísbendingu, og hefur fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum er sagt að: „Ef launavísitala hækkar meira en verðlag þá hækka þær í takt við laun en ef verðlag hækkar meira þá halda þær, gagnstætt launum, kaupmætti sínum og hækka þá meira en launavísitalan.“ Einnig er sagt um frumvarpið að: „Bætur almannatrygginga hækka þá vegna launahækkana og síðan enn meira þegar verðbólga eykst, verðbólgan minnkar kaupmátt launafólks en ekki kaupmátt bótagreiðslna. Bótaþegar fá þannig bæði kjarabætur sem innstæða er fyrir og einnig innstæðulausar kjarabætur á meðan kaupmáttur launafólks eykst einungis ef innstæða er fyrir þeim.“ Þarna er á ferðinni misskilningur um efni frumvarpsins. Frumvarpið leggur ekki til að á hverju ári verði horft á 12 mánaða þróun beggja vísitalna og sú hærri lögð til grundvallar. Heldur leggur frumvarpið til að miðað verði við grunnpunkt, stöðu vísitölu launa í júní 2025, og þannig jafnar grunnpunkturinn út tvöfalda lásinn. Þessi aðferð tryggir að ekki eigi sér stað sá tvíverknaður sem greinarhöfundarnir óttast, þ.e. að lífeyrir hækki fyrst vegna launahækkana á almennum markaði og svo vegna verðbólgu. Lífeyrir mun fylgja þeirri vísitölu sem reynist hærri. Einfalt dæmi mætti hugsa sem svo: Vísitala neysluverðs hækkar um 10% á ári 1, en launavísitalan um 0%. Á ári 2 hækkar svo Launavísitalan um 10% en vísitala neysluverðs um 0%. Af málflutningi gagnrýnenda í fjölmiðlum undanfarna daga mætti halda að lífeyrir almannatrygginga ætti þá að hækka um 10% tvö ár í röð, en samkvæmt frumvarpinu myndi lífeyrir hækka um 10% fyrsta árið og 0% seinna árið. Hér til útskýringar er texti úr greinargerð frumvarpsins: Til þess ber þó að líta að í tilteknum tilvikum getur orðið frávik á milli lífeyrisþega og tiltekinna launahópa þegar litið er til launaþróunar, hvort sem hún er mæld með kjarasamningsbundnum hækkunum eða launavísitölu. Þannig getur krónutöluhækkun lægstu launa leitt til meiri hækkunar lægstu launa en prósentuhækkun launavísitölu myndi leiða til varðandi greiðslur almannatrygginga. Hinn svokallaði tvöfaldi lás, sem miðar við launavísitölu að því gefnu að greiðslur hækki aldrei minna en sem nemur vísitölu neysluverðs, getur þá leitt til tvöfaldrar hækkunar vegna verðbólguskots, fyrst vegna hækkunar á vísitölu neysluverðs og svo vegna hækkunar launa sem ætlað er að mæta framangreindri hækkun verðlags. Í slíku tilviki gætu greiðslur almannatrygginga hækkað meira en laun launþega á vinnumarkaði, sérstaklega láglaunahópa. Til þess að koma í veg fyrir það er í frumvarpinu lagt til að miðað sé við upphafspunkt í júní 2025 þannig að leiðrétting miðist við mældar vísitölur launa og neysluverðs sem Hagstofa Íslands birtir til júnímánaðar yfirstandandi árs. Þannig mun uppsöfnuð hækkun greiðslna almannatrygginga aldrei verða minni en hækkun framangreindra vísitalna frá júní 2025. Þannig mun upphafspunktur launavísitölunnar jafna út hækkanir vegna sveiflna í verðlagi. Kjarni málsins er sá að tryggja að lífeyrir almannatrygginga fylgi launaþróun. Við gerum það með því að tengja lífeyrir við opinbera mælikvarðann á launaþróun, sem er launavísitala Hagstofu Íslands. Þannig stöðvum við kjaragliðnun milli lífeyris og launa. Höfundur er félags- og húsnæðismálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Ingólfsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar