Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Kjartan Kjartansson skrifar 6. febrúar 2026 09:00 Vladímír Aleksejev, undirhershöfðingi, árið 2023. Hann var skotinn nokkrum skotum í Moskvu í dag. AP/varnarmálaráðuneyti Rússlands Einn aðstoðarforstjóra rússnesku herleyniþjónustunnar GRU var skotinn og særður af óþekktum byssumanni í Moskvu í dag. Forstjóri GRU tók þátt í viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna í Abú Dabí í gær.
Vladímír Aleksejev, undirhershöfðingi, var skotinn nokkrum skotum og liggur nú á sjúkrahúsi samkvæmt upplýsingum rannsóknarnefndar Rússlands, alríkislögreglu landsins, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Aleksejev hefur verið næstráðandi GRU frá árinu 2011. Nokkrir hátt settir stjórnendur í rússneska hersins hafa verið ráðnir af dögum í MOskvu á undanförnum árum. Rússnesk stjórnvöld hafa kennt Úkraínumönnum um þau tilræði. Igor Kostjukov, forstjóri GRU, var staddur í Abú Dabí í gær þar sem hann stýrði samninganefnd Rússa í viðræðum við Úkraínumenn með milligöngu Bandaríkjamanna. Helsta niðurstaða viðræðnanna í gær virðist vera að Rússar og Bandaríkjamenn hafi eft tengsl sín. Þeir komust að samkomulagi um að taka aftur upp samskipti á milli æðstu yfirmanna herafla þeirra sem hafa legið niðri undanfarin fjögur ár frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. Samningaviðræðurnar virðast aftur á móti ekki hafa skilað Úkraínumönnum miklu. Rússar hertu enn árásir sínar á orkuinnviði nágranna sinna til þess að valda rafmagnsleysi hjá úkraínskum almenningi og veikja baráttuþrek þeirra.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Sjá meira