Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. febrúar 2026 10:50 Áætlað er að um 3.700 einstaklingar átján ára og yngri hafi gengist undir kynleiðréttingaraðgerðir, flestir undir brjóstnám. Getty Samtök lýtalækna í Bandaríkjunum, American Society of Plastic Surgeons, hafa mælst til þess að félagsmenn framkvæmi ekki kynleiðréttingaraðgerðir á sjúklingum yngri en nítján ára.
Samtökin segja í yfirlýsingu skorta á rannsóknir á langtímaáhrifum kynleiðréttingaraðgerða ungmenna á borð við brjóstnám og segja vísbendingum hafa fjölgað um mögulega skaðsemi aðgerðanna. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fagnað ákvörðun samtakanna sem sigri fyrir „líffræðilegan sannleika“ en aðrir segja hana endurspegla bakslag í réttindabaráttu trans fólks og áhyggjur heilbrigðisstarfsmanna af skaðabótaábyrgð. Yfirlýsing American Society of Plastic Surgeons kemur á hæla ákvörðunar kviðdóms í New York, sem komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að kona að nafni Fox Varian, 22 ára, ætti rétt á tveimur milljónum dala í skaðabætur vegna brjóstnáms sem hún gekkst undir þegar hún var sextán ára. Varian er líffræðileg kona sem upplifði kynama á unglingsárum og taldi sig vera trans mann. Eins og fyrr segir gekkst hún í kjölfarið undir brjóstnám en sá síðar eftir því, þar sem hún upplifir sig nú aftur sem konu. Samkvæmt gögnum málsins glímdi Varian við ýmsar andlegar áskoranir á unglingsárum, meðal annars þunglyndi, félagsfælni og átröskun. Þá var hún greind með einhverfu þegar hún var fjórtán ára. Þegar hún var fimmtán ára fór hún að upplifa kynama, breytti nafni sínu í Rowan og fór að binda niður brjóst sín. Hún fór til sálfræðings sem hafði enga reynslu af meðferð trans fólks en lagði til að Varian byrjaði á því að prófa hormónablokkera. Hún krafðist þess hins vegar að fá að ganga undir brjóstnám og var vísað áfram til lýtalæknis níu mánuðum seinna. Segja málið snúast um vankunnáttu læknanna Móðir Varian lýsti því fyrir dómi að hún hefði upplifað þrýsting frá sálfræðingnum, sem hefði sannfært hana um að aðgerðin myndi bæta andlega heilsu dótturinnar. Sérfræðingar hafa bent á að málið snúist í raun og veru um gáleysi læknanna tveggja sem meðhöndluðu Varian; sálfræðinginn og lýtalækninn. Sálfræðingurinn fylgdi til að mynda ekki eftir viðtölum sem Varian átti við ráðgjafa LGBTQ-samtaka en þar kom fram að hún væri enn á báðum áttum varðandi kynvitund sína. Læknarnir hafi hreinlega ekki haft þekkingu til að höndla málið. Lögmaður í Kaliforníu sem fer með mál fjögurra einstaklinga sem hófu kynleiðréttingarferlið en skiptu síðar um skoðun, ef svo má að orði komast, og standa í málaferlum vegna þeirrar læknisfræðilegu meðferðar sem gengust undir, segir mál Varian hins vegar til marks um að kviðdómar séu reiðubúnir til að dæma þeim í vil sem segja hvorki þá sjálfa né foreldra þeirra hafa skilið til fulls hvað kynleiðréttandi meðferð myndi hafa í för með sér. Hér má finna ítarlega umfjöllun New York Times.
Bandaríkin Heilbrigðismál Málefni trans fólks Hinsegin Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira