Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Jakob Bjarnar skrifar 4. febrúar 2026 14:34 Hreindýrahópur á vetrarbeit. Jóhann Páll hefur ákveðið, að fenginni ráðgjöf frá Náttúruverndarstofnun, að kvótinn í ár verði 936 dýr. vísir/getty Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2026. Kvótinn, sem er gefinn út að fengnum tillögum frá Náttúruverndarstofnun, er nú 936 dýr; 499 kýr og 437 tarfar.
Þetta er nokkur aukning frá í fyrra en þá var veiðikvótinn 665 dýr en þá voru óvenju fá leyfi gefin út. Svo dæmi sé tekið var hreindýrakvótinn fyrir 2021, 1220 dýr. Sumarstofn hreindýra er áætlaður fimm þúsund dýr. Í fyrra var hann talinn vera um fjögur þúsund þannig að stofninn er að braggast. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Náttúruverndarstofnunar. Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til 15. september en veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. „Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur jafnframt fram að veiðileyfi fyrir tarf er 241.600 kr. en 137.700 kr. fyrir kú. Þetta mun vera vísitöluhækkun en víst er að kostnaður við að veiða tarf til að mynda er orðinn verulegur. Fyrir utan leyfið þarf veiðimaður að greiða hreindýraleiðsögumanni, eldsneyti á bifreið sína á veiðislóð, kostnað við að taka skotleyfi og þá kostnað við skot og riffil, ferðakostnað, gistingu, uppihald, kjötiðnaðarmanni við að gera að dýrinu og svo að endingu flutningskostnað við að fá dýrið heim. Misjafnt er vitaskuld hversu mikið hver og einn þarf að borga fyrir hvern lið um sig en gróft áætlað má reikna kostnaðinn upp í kringum 600 þúsund krónur. Eins gott er fyrir veiðimenn að veiðarnar gangi greiðlega fyrir sig.
Skotveiði Stjórnsýsla Neytendur Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira